Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs kynntar 26. apríl á hátíðinni April Jazz
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2017 verða kynntar á opnunartónleikum hátíðarinnar April Jazz í Finnlandi kl. 19:30 (að dönskum tíma).
April Jazz er stærsta árlega djasshátíðin á Helsinkisvæðinu og er hún haldin í 31. sinn í ár.
Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs verður tilkynntur og verðlaunin afhent þann 1. nóvember í Finlandia-húsinu í Helsinki.