Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026
Verkin sem tilnefnd eru í ár opna leið inn í fjölbreytt og einstakt tónlistarlandslag sem býður upp á dýpt og ígrundun þar sem hefðir renna saman við nýsköpun. Meðal tilnefndra verka eru allt frá barnaóperu til kvikmyndatónlistar, klassískrar tónlistar, popps og djass, auk efnis sem tekið er upp utan hljóðvera, nútímalegrar túlkunar á austurgrænlenskum trommudansi og norðursamískri jojkhefð í bland við rafrænar hljóðmyndir. Einnig má nefna á meðal tilnefninganna óvenjulegt tónverk algjörlega án hljóðs, þar sem fólk tjáir tónlistina með hreyfingum og svipbrigðum.
Danmörk
Finnland
Færeyjar
Grænland
Ísland
Noregur
Svíþjóð
Álandseyjar
Tilkynnt um verðlaunahafann 20. október
Tilkynnt verður um vinningshafa tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 hinn 20. október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki síðustu vikuna í október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.
Um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt annars vegar núlifandi tónskáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda. Í ár renna verðlaunin til tónverks.