Vill koma í veg fyrir misnotkun au pair-ráðinna

27.01.15 | Fréttir
Penilla Gunther
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Velferðarnefnd Norðurlandaráð telur að Norðurlönd þurfi að starfa saman að því að koma í veg fyrir misnotkun fólks sem ráðið er í au pair-vist og tryggja þeim rétt og aðgang að viðunandi kjörum og vinnuaðstæðum. Nefndin hefur þess vegna stutt tillögu um aðgerðir gegn misnotkun au pair-fyrirkomulagsins.

Þingmenn í Norðurlandaráði vilja ekki sætta sig við að fólk frá fátækum löndum sé misnotað í gegnum au pair-fyrirkomulagið og þess vegna leggur nefndin til að tekin verði saman greinargerð og haldin stór ráðstefna til að varpa ljósi á vandann. Eftir það er markmiðið að mótuð verði sameinleg reglugerð fyrir au pair-fyrirkomulagið á Norðurlöndum.

– Að taka málið upp á pólitískum vettvangi er eina leiðin til að koma í veg fyrir að au-pair-fyrirkomulagið sé misnotað, segir Sonja Mandt, þingkona norska Verkamannaflokksins, sem er talsmaður nefndarinnar í þessu máli.

Hér má lesa tillöguna í heild:

Þingmannatillaga um að auka norrænt samstarf um reglur fyrir au pair-vist á Norðurlöndum

Au pair er franska og þýðir að „standa jafnfætis“ Upprunalegur tilgangur au pair-kerfisins var menningarmiðlun. Sá eða sú sem ráðin var í au pair-vist fékk tækifæri til að læra tungumálið og kynnast menningunni með því að vinna létt heimilisstörf eða passa börn. Gestgjafafjölskyldan kynntist menningu hins vistráðna.

Kerfið misnotað

Nú á tímum kemur oft fyrir að au pair-kerfið er misnotað. Sífellt fleiri hinna vistráðnu eru fátækar konur sem hafa fáa aðra möguleika til að sjá sjálfum sér og fjölskyldu sinni farborða. Margar þeirra fara burt frá börnum sínum í heimalandinu til að passa börn gestgjafafjölskyldunnar. Þessar konur koma til framandi lands þar sem talað er framandi tungumál, þær hafa ekkert tengslanet og þekkja ekki lög og reglur landsins og því er hætta á að þær verði misnotaðar. Oft felst þessi misnotkun í of lágum launum og of mikill vinnu, en hún getur einnig falist í kynferðislegri misnotkun.

– Okkur vantar strangari löggjöf og samsvarandi reglur á Norðurlöndum hvað varðar au pair-kerfið. Þess vegna er mikilvægt að upplýsingar um misnotkun fyrirkomulagsins verði gerðar aðgengilegar. Nota mætti þá leið sem Finnar hafa farið, það er að segja að hafa sérstakan skýrslugjafa vegna mansals, í fleiri norrænum löndum, segir Pernilla Gunther, þingmaður Kristilegra demórkata í Svíþjóð og formaður nefndarinnar.