Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir
Í barnabókinni Skólastjórinn spinnur Ævar Þór Benediktsson söguþráð sem endurspeglar það sem flest börn þrá: að fá sjálf að ráða. Þegar hinn uppátækjasami 12 ára sögumaður, Salvar, sækir um embætti skólastjóra og fær starfið vegna tæknilegra misbresta í tölvukerfi borgarinnar renna hins vegar fljótlega á hann tvær grímur. Skólastjórastarfið reynist annað en hann hélt.
Frásögnin er ærslafull og kraftmikil og ber þannig skýr höfundareinkenni Ævars Þórs, en undir léttu og leikandi yfirborðinu leynist beitt samfélagsleg ádeila. Nýi skólastjórinn hefur sett saman lista yfir úrbætur í skólastarfinu: pítsur í hádegismat og grís í hvern bekk, en líka að nemendur hafi sitt að segja um stjórnun skólans og megi tvisvar á ári reka einn kennara. Í þessu kemur fram sú grunnhugmynd frásagnarinnar að börn eigi sjálf að hafa völd og áhrif í nærumhverfi sínu, sem að mörgu leyti endurspeglast í hugmyndafræði Norðurlandanna, þó framkvæmdin sé yfirleitt ekki eins róttæk.
Sérstaklega athyglisvert er hvernig höfundur hefur spunnið inn í frásögnina hugmyndir sem hann fékk beint frá börnum; hann gerði í raun eigindlega rannsókn með því að hafa samband við hóp barna og spyrja: Hverju myndir þú breyta í skólanum ef þú fengir að ráða? Rödd barnsins verður þannig ekki aðeins viðfangsefni sögunnar, heldur raunverulegur drifkraftur hennar. Þessi nálgun dýpkar ekki aðeins hugmyndaauðgi sögunnar, heldur einnig tengslin við lesendurna, bæði fullorðna og börn.
Persónurnar í Skólastjóranum eru margbrotnar og mismunandi, en sameinast í þeirri einlægu viðleitni að vilja gera það sem þær telja skólanum fyrir bestu – jafnvel þótt skoðanir þeirra fari ekki alltaf saman um hvaða verkefni brýnast sé að takast á við hverju sinni, eins og nauðsyn þess að bjóða upp á ullarbrjóstsykur í hádeginu!
Teikningar Elínar Elísabetar styðja á áhrifaríkan hátt við textann. Þær fanga bæði gáska og tilfinningadýpt sögunnar og skapa heildstæða fagurfræðilega upplifun þar sem mynd og texti vinna saman til að efla frásögnina.
Skólastjórinn talar skýrt inn í umræður á hverjum tíma um skólakerfið, völd og gjá í samskiptum kynslóðanna. Höfundi tekst með húmor og hlýju að sýna hvernig samtal og gagnkvæmur skilningur geta brúað það bil.
Ævar Þór Benediktsson (f. 1984) er rithöfundur, leikari og þáttastjórnandi sem einkum hefur skapað efni fyrir börn. Hann hefur skrifað á fjórða tug barnabóka og hlotið ýmis verðlaun, þeirra á meðal heiðursverðlaun Margaret Wise Brown. Fyrir Skólastjórann hlaut hann ásamt Elínu Elísabetu Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bóksalaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka.
Elín Elísabet Einarsdóttir (f. 1992) er myndlistarmaður og teiknari. Hún lauk B.A-námi frá Listaháskóla Íslands og stundar nám í ritlist við Háskóla Íslands. Elín Elísabet hefur haldið myndlistarsýningar víða og er myndhöfundur fjölda bóka.