Dag Johan Haugerud

Ljósmyndari
Baard Henriksen
Dag Johan Haugerud: Sjelesorg, skáldsaga, Forlaget Oktober, 2025. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

I Sjelesorg („Sálusorg“, hefur ekki komið út á íslensku) kynnumst við Thomasi sem starfar sem djákni hjá Paulusarsöfnuðinum í Ósló. Þótt þversagnakennt megi virðast er hann ekki kristinn – og þar skapast ákveðin grundvallarspenna sem veldur stöðugum misskilningi og innri átökum. Þegar Thomas kynnist Lars og laðast mjög að honum reynir enn frekar á þessa spennu. Samband þeirra kveikir mótsagnakenndar tilfinningar innra með Thomasi og kemur honum í ógöngur, bæði í starfinu sem djákni og sem manneskja. Í gegnum Lars kynnist hann líka Astrid, alvarlega veikri unglingsstúlku, en dularfullt ástand hennar leiðir frásögnina að óvæntum vendipunkti.

Sjelesorg er skáldsaga sem hefur til að bera lágstemmda og óvenju fágaða tjáningu. Í henni eru settar fram algildar grundvallarspurningar um sambönd, losta, þrá, trú og efa. Á ýmsan hátt er hér fjallað um þá einsemd sem lífið grundvallast á – og um það hvernig þörf manneskjunnar fyrir náin tengsl, og skortur á þeim, getur leitt okkur villur vega í lífinu.

Thomas er ekki kristinn, hann er samkynhneigður og skáldsagan hverfist um þá spennu sem hlýst af þessu: Hvernig er hægt að vera eitthvað tvennt sem ekki fer saman? Hvernig getur hann verið trúlaus djákni, samkynhneigður karlmaður í samhengi sem krefst þess að hann aðlagist? Í starfi sínu sem djákni speglar hann annað fólk daginn út og inn; hann er eins og óskrifað blað. Sú spenna sem hlýst af andstæðunum í lífi Thomasar, sem vill að aðrir sjái hann en langar um leið að fela sig, er einn af styrkleikum bókarinnar. Hvað má segja og hvað þarf að láta ósagt? Sjelesorg fjallar að mörgu leyti um grímuleiki: Hver erum við hvert fyrir öðru þegar krísur dynja yfir? Hversu heiðarleg getum við verið í leit okkar að ást? Og hve mikla stjórn höfum við í raun á eigin tilfinningalífi áður en það byrjar að leysast upp? Er hægt að elska einhvern án þess að þurfa að fá ást til baka? 

Thomas kemur fyrir sem ljúfur djákni með sterka þörf fyrir að vera mikilvægur í augum annarra, en hvað gerist þegar öðrum finnst hann ekki skipta máli? Þegar aðstæður verða skyndilega hættulegar skiptir Thomas um grímu. Hin þrotlausa leit hans að nánd og tengingu er hæglát en jafnframt þrálát – henni vindur rólega áfram, hún verður bæði líkamleg og tilfinningaleg og lætur ekki þegja sig í hel. Þessi lágstemmdi stíll er gegnumgangandi í verkinu og einkennir öll sambönd sem lýst er í frásögninni, allar setningar og allar samræður.

 

Dag Johan Haugerud (f. 1964) er bæði kvikmyndahöfundur og rithöfundur. Hann sló í gegn árið 2024 með kvikmyndaþríleiknum Sex, Kärlek og Drömmar, þar sem sú síðastnefnda hlaut Gullbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Að auki hefur hann tvisvar hlotið kvikmyndaverðalaun Norðurlandaráðs, fyrir myndirnar Barn og Sex. Frumraun hans í skáldsagnagerð var Noe med natur (1999). Sjelesorg er fimmta skáldsaga hans.