Gunnar Helgason og Rán Flygenring
Gunnar Helgason glímir við erfið umfjöllunarefni í Bannað að drepa, málefni sem hvíla þungt á okkur öllum um þessar mundir: stríðsátök, áföll og missi. Ætla mætti að svo þung umræðuefni myndu bera frásögnina ofurliði, en einstök sagnagleði höfundar og hæfni til að mæta lesendanum í augnhæð gera honum kleift að nálgast efniviðinn þannig að kátína og innileiki verði aldrei langt undan, og ná þannig tengingu við lesandann.
Nýr félagi er kominn í bekkinn hans Alexanders. Hann heitir Vola og kemur frá Úkraínu. Drengurinn er þögull og lokaður – eiginlega hundleiðinlegur ef Alex á að vera heiðarlegur. Steininn tekur úr þegar það líður yfir Vola í sundi við að sjá húðflúr á manni í sturtunni. Það er bara einn stafur. Z. Alveg merkilegt hvað hann er viðkvæmur! Átakasvæði heimsins teygja sig alla leið inn í sturtuklefa hjá Alexander og vinum hans. Grafalvarleg og flókin málefni eru opnuð og skoðuð í gegnum huga barns með ADHD þar sem þúsund hugsanir þjóta fram, bæði viðeigandi og alls ekki, þannig að lesandinn verður beinn þátttakandi í atburðarásinni.
Gunnar fléttar átök í Evrópu fumlaust saman við þann djúpstæða ótta og þá líkamlegu þjáningu sem börn á átakasvæðunum hafa upplifað, og sýnir um leið hvaða áhrif slíkir atburðir geta haft á börn í öðrum löndum, í þessu tilviki skólabörn á Íslandi. Í fjölbreyttri og hraustri barnabókaflóru er dýrmætt að hafa metnaðarfulla höfunda sem geta skrifað um alvarleg málefni á þann hátt að börn fræðist um þau en finni um leið til öryggis, hlýju og mannúðar. Þó að umfjöllunarefnið sé alvarlegt einkennist bókin af fjörugri frásögn sem lifnar enn frekar við í líflegum myndum Ránar Flygenring. Eins og í fyrri bókum höfundar í framhaldsflokknum „ADHD“ er persónuflóran fjölbreytt og litrík, og framvindan spennandi.
Bannað að drepa er bók sem sýnir djúpan skilning á hugarheimi barna og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífsins. Hún gefur ekki auðveld eða einföld svör við þeim spurningum sem brenna á börnum í því pólitíska landslagi sem einkennir heiminn um þessar mundir, en opnar leið fyrir samræður milli fullorðinna og barna.
Gunnar Helgason (f. 1965) er leikari, leikstjóri, dagskrárgerðarmaður fyrir sjónvarp og rithöfundur. Hann hefur skrifað fjöldann allan af vinsælum barnabókum sem hlotið hafa ýmis verðlaun. Gunnar hlaut tilnefningu til barnabókaverðlauna Astrid Lindgren árið 2022. Rán Flygenring (f. 1987) er sjálfstætt starfandi mynd- og rithöfundur, listamaður og hönnuður. Hún hefur gefið út á annan tug bóka og margar þeirra hafa verið þýddar á ýmis tungumál. Rán hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars voru henni veitt barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir bókina Eldgos.