Handhafi umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021

Vinder af Nordisk Råds miljøpris 2021

Vinder af Nordisk Råds miljøpris 2021

Photographer
Norden.org/Magnus Fröderberg
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021 hlýtur græna hugmyndasmiðjan Concito frá Danmörku fyrir gagnagrunninn Den Store Klimadatabase.

Rökstuðningur dómnefndar

Hér um bil fjórðungur af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum stafar af matvælaframleiðslu. Aðgangur að upplýsingum um kolefnisspor matvöru skiptir því sköpum til að þoka bæði framleiðslu og neyslu matvæla í sjálfbærari átt.

Þekki neytendur kolefnisspor matvöru geta þeir tekið upplýsta ákvörðun um það hvort þeir kjósi að nota hana á eigin heimili. Slík þekking á – vonandi – eftir að skila sér í því að matarvenjur hafi minni neikvæð áhrif á loftslagið. 

Gagnagrunnurinn Den Store Klimadatabase hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir mikla möguleika til að skapa grundvöll að sjálfbærari neyslu og framleiðslu matvæla á Norðurlöndum.

Gagnagrunnurinn veitir innsýn í kolefnisspor ýmiss konar matvöru með einföldum og greinargóðum hætti og að auki eru allar upplýsingarnar í gagnagrunninum aðgengilegar án endurgjalds.

Skipulegar aðferðir við gagnasöfnun, mikið magn matvæla sem unnið er með og rík áhersla á matvælageirann er það sem helst einkennir Den Store Klimadatabase. Gagnagrunnurinn er einfaldur að gerð og hönnun og auðvelt er að aðlaga þær aðferðir til útreikninga sem hann byggir á svo að einnig megi nýta hann í sjálfbærniverkefnum í öðrum löndum og málaflokkum. Í stuttu máli sýnir gagnagrunnurinn fram á það hvernig einföld og aðgengileg miðlun á upplýsingum sem mikil eftirspurn er eftir getur orðið að stökkbretti fyrir neytendur til að breyta neysluhegðun sinni.

Sökum hinna miklu möguleika sem gagnagrunnurinn býður til að breyta hegðun neytenda hefur dómnefndin ákveðið að veita grænu hugmyndasmiðjunni Concito umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021.