Hanne-Sofie Suongir og Nina Marie Andersen

Hanne-Sofie Suongir och Nina Marie Andersen
Ljósmyndari
Therese Norman Andersen
Hanne-Sofie Suongir og Nina Marie Andersen (myndhöf.): Emma Dilemma, Iđut, unglingabók, 2023. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Emma dilemma er norðursamísk unglingabók á dagbókarformi. Bókin færir lesandann inn í daglegt líf samískrar unglingsstúlku í gegnum handskrifaðar dagbókarfærslur. Aðalpersónan er hin 14 ára Emma sem gengur í gegnum ást, sorg og bæði góða og ótrausta vini.  

Viðfangsefni bókarinnar spanna áskoranir og aðstæður unglingsáranna og um leið er tekist á við erfið og mikilvæg efni á borð við átraskanir, kynvitund, sorg og missi.

Hér hefur Hanne-Sofie Suongir skrifað bók sem er sú fyrsta sinnar tegundar á samísku. Hún er skrifuð á auðskildu ungmennamáli sem býður ungum lesendum inn í hugarheim Emmu. Fullorðnir lesendur munu einnig kannast við ýmislegt frá sínum yngri árum og geta jafnframt lært eitthvað um tilveru ungmenna í dag. 

Hanne-Sofie Suongir kann þá list að halda lesandanum föngnum og hún deilir hugsunum Emmu með snilldarlegum hætti. Lesandann langar að halda lestrinum áfram, vill vita hvernig ástamálum Emmu vindur fram, hvernig fer með vinasamböndin og hvernig Emma vinnur úr sorginni eftir andlát litlu systur sinnar. Bókin er auðlesin og getur því náð til víðari markhóps þar sem fleiri ungmenni munu geta lesið hana.  

Myndirnar í bókinni sýna tilfinningar og hugsanir Emmu. Allt frá því að Emma er skotin – og leikur sér að því að slíta blöð af blómi, eitt í einu: elskar mig, elskar mig ekki – og þangað til hún birtist í svarthvítu, til merkis um sorgina, við hlið hinnar fjörugu, litríku og leikglöðu litlu systur sem fór allt of snemma. Myndirnar sýna hvernig vinir Emmu hafa áhrif á daglegt líf hennar, stundum með lygum og svikum en einnig með vináttu og gleði. Myndirnar sýna okkur einnig á hvaða samíska landsvæði ungmennin búa. Samísku þjóðbúningarnir („kolt“) gefa til kynna að við erum stödd á norðursamísku svæði. Myndirnar í bókinni dýpka frásögnina í dagbókarfærslunum enn frekar og lesandinn getur lifað sig inn í hugarheim Emmu í gegnum bæði texta og myndir. 

Hanne-Sofie Suongir (f. 1990) er frá Tana í Noregi. Fyrsta bók hennar, barnabókin Elle, guohcamanit poastakantuvvras, kom út árið 2020. Hún hefur einnig skrifað barnabækurnar Buorre idja, Sunnáš (2022) og Pelle mu gigastuorra superskihpár (2024). Hanne-Sofie Suongir hlaut bókmenntaverðlaun Samaráðsins 2024 fyrir unglingabókina Emma Dilemma (2023). 

Nina Marie Andersen er myndlistarmaður og myndhöfundur. Hún hefur myndlýst fjölda barnabóka og einnig námsefni fyrir börn og unglinga.