Ingá Elin Marakatt og Inga-Wiktoria Påve

Ljósmyndari
Karen Ann Hurri / Carl Johan Utsi
Ingá Elin Marakatt og Inga-Wiktoria Påve (myndhöf.): Elsa, Jovnna ja Sirkus Maximus. Myndabók, Davvi Girji, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Með  Elsa, Jovnna ja Sirkus Maximus („Elsa, Jovnna og Cirkus Maximus“, hefur ekki komið út á íslensku) hefur Ingá Elin Marakatt skapað einstaka og áhugaverða barnabók sem sameinar kímni, töfra og samíska menningu á skemmtilegan og auðgandi hátt. Gegnum frásögn af börnunum Elsu og Jovnna, sem hefja spennandi leit að fílsunga sem hefur týnst úr sirkus, miðlar Marakatt algildum þemum á borð við vináttu, samstarf og sjálfsmynd og beinir um leið athygli lesenda að samískum gildum og hefðum.  

Bókin fæst við þemu á borð við sjálfsmynd, það að tilheyra og forvitni um hið ókunna. Kynni Elsu og Jovnna af sirkusnum sýna hve stolt börn geta verið af menningu sinni, en jafnframt opin fyrir því að læra af öðrum. Rithöfundurinn vísar líka til flókinna viðfangsefna og sögulegra atburða sem margir þekkja ekki til, svo sem nauðungarflutninga samískra hreindýrahirða sem gerðu að verkum að Bietedievvá lagðist í eyði og að enn liggur bölvun á staðnum.   

Marakatt skrifar á norðursamísku og tungumálið leikur stórt hlutverk í bókinni. Með notkun lifandi tungumáls leggur höfundurinn sitt af mörkum til að varðveita samískuna og miðla henni til komandi kynslóða. Um leið veitir hún þeim lesendum sem ekki eru Samar færi á að kynnast auðugri og lifandi menningu. Í sögunni fléttast saman miðlæg samísk gildi á borð við virðingu fyrir náttúrunni, samheldni og hefðbundna þekkingu. Þessi gildi eru kynnt á hátt sem er viðeigandi og aðgengilegur fyrir börn með hvers kyns menningarlegan bakgrunn, sem sýnir að hefðirnar geta vel verið samræmanlegar nútímalífsháttum.   

Sirkusinn í frásögninni stendur fyrir hið óþekkta og spennandi, sem Marakatt lýsir fullkomlega í gegnum hina náttúrulegu töfra í daglegu lífi Elsu og Jovnna. Andstæður nútímans og hefðanna ljá bókinni einstakan kraft og dýpt. Bókin vegur salt á milli hins þekkta og hins ókunna á fallegan og hlýjan hátt. Höfundur varpar ljósi á uppsafnaða reynslu og djúpa staðbundna þekkingu margra kynslóða til þess að sýna hvernig hið þekkta getur rúmað og skilið hið óþekkta. Í slíku samspili, þar sem yngra og eldra fólk stendur saman og nýtir þekkingu sína á náttúrunni og umhverfi sínu, liggur styrkurinn sem gerir þeim kleift að bjarga hinum óþekkta fílsunga.   

Með þessari bók hefur Marakatt skapað verk sem er ekki aðeins bókmenntaleg perla heldur einnig mikilsverð brú milli menningarheima.  Elsa, Jovnna ja Sirkus Maximus er lofgjörð til samískrar sjálfsmyndar og hefðar og hvetur lesendur um leið til að vera opnir og forvitnir andspænis hinu óþekkta.   

Ingá Elin Marakatt er rithöfundur, blaðamaður og hreindýrabóndi frá sænska hluta Samalands. Sendi frá sér sína fyrstu bók, unglingaskáldsöguna Sáve Sápmi, árið 2020. Hún hefur skrifað fjölda barna- og ungmennabóka.  

Inga-Wiktoria Påve hefur teiknað litríkar myndir, krökkar af smáatriðum, sem eiga þátt í að gera frásögnina lifandi og spennandi. Með hlýrri litanotkun, svipmiklum persónum og stemningsríku umhverfi ljær hún sögunni sjónræna vídd sem fangar athygli barna. Myndirnar falla sömuleiðis afar vel að viðfangsefnum og sögusviði frásagnarinnar. Myndhöfundur dregur upp raunsanna og auðþekkjanlega mynd af samískum bæ sem örvar jafnframt ímyndunarafl lesandans.   

Elsa, Jovnna ja Sirkus Maximus er ekki bara samísk frásögn, heldur algild saga sem börn alls staðar á Norðurlöndum geta lesið og hrifist af. Hún veitir mikilsverða innsýn í samíska menningu og miðlar um leið boðskap sem á erindi við okkur öll.