Kaia Dahle Nyhus

Kaia Dahle Nyhus
Ljósmyndari
Line Fresti
Kaia Dahle Nyhus: Det som finnes og det som er borte, Cappelen Damm, myndabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Í Det som finnes og det som er borte („Það sem er hér og það sem er farið“) kynnumst við fjölskyldu sem upplifir stríð, flótta og nýtt upphaf í framandi landi.  

Á fyrstu opnu bókarinnar sjáum við barn sem situr á tröppunum við húsið sitt í heimalandinu. Hér er lífið kunnuglegt og gott. „Það er köttur á tröppunum. Og leynileg skúffukaka undir rúminu.“ Barnið er umvafið öryggi sem birtist í dúfum í vindinum og blómstrandi sólblómum. Litirnir eru hlýir og aðlaðandi. 

Þegar flett er á næstu síðu knýr alvaran dyra. Faðir barnsins þarf að fara í stríðið. Móðirin og barnið verða að flýja úr landi. Eftir þetta verður andrúmsloftið annað, bæði í myndum og texta. Óhugnaður og fjarlægð í tungutaki bókarinnar skapa stöðuga ónotatilfinningu hjá lesandanum. Myndirnar eru grófar og köntóttar og litanotkun í lágmarki. Það er sérlega sárt að sjá að meðan á flóttanum stendur er ekkert augnsamband eða líkamleg snerting milli móðurinnar og barnsins. Einhæfar og taktbundnar setningar undirstrika óþægindin: „Hér er enginn pabbi. / Hér er enginn köttur á tröppunum. / Hér er maður sem spyr / hvort ég heiti það sem ég heiti.“  

Dahle Nyhus nálgast líðan barnsins af alvöru og hefur einstakan hæfileika til að sjá heiminn frá sjónarhóli þess. Auðvelt er að fylgja frásögninni eftir og lesandinn finnur skýrt fyrir nærveru barnsins. Því er léttir lesandans mikill þegar nýja landið gefur möguleika á von. Þótt allt sé nýtt fæst alveg eins gosdrykkur hér og heima, og þarna er köttur sem vill kannski leika. Á síðustu opnu bókarinnar situr barnið í fangi móður sinnar. „Hér er mamma sem er kannski glöð. Hér er sími með röddinni hans pabba.“  

Det som finnes og det som er borte er sterk myndabók um efni sem mörg börn hafa upplifað sjálf eða heyrt talað um. Þetta er bók sem lýsir mikilvægu viðfangsefni á beinskeyttan en jafnframt ljóðrænan hátt. Myndirnar fanga andrúmsloft bókarinnar með raunsæjum hætti og stríðinu er lýst án þess að farið sé út í óþarfa smáatriði. 

Kaia Dahle Nyhus (f. 1990) er verðlaunaður rithöfundur og myndhöfundur. Hún gaf út sína fyrstu bók árið 2014 og hefur síðan sent frá sér fjölda myndabóka. Á aðeins fáeinum árum hefur hún skipað sér í hóp helstu myndabókahöfunda Noregs.