Linda Örtenblad
Önnur bók Lindu Örtenblad, Kartotek över döda och återuppståndna („Spjaldskrá yfir látin og upprisin“, hefur ekki komið út á íslensku), er smásagnasafn þar sem sögurnar mynda einnig stærri frásögn af lífi, dauða og ýmsu þar á milli.
Höfundurinn færir okkur á staði sem virðast kunnuglegir en við sjáum þó fljótlega að við höfum aldrei komið á. Þetta eru kirkjugarðar, skrifstofa á háalofti, strandlengjur, götur þar sem búist er við líkbíl á hverri stundu, kjallari. Höfundur leiðir okkur á þessari hægu göngu og kynnir okkur varfærnislega fyrir þeim sem hún vill að við hittum, uns við að lokum hittum okkur sjálf fyrir.
Það er ákveðinn eyðileiki í þessum innri einræðum sem lætur okkur verða hrollkalt – það er kaffi að kólna, það er rafmagnsleysi, en líka manneskjur sem eru sínar eigin orkuuppsprettur. Já, öll þessi ólíku hitastig gera að verkum að stirðnuð hjörtu í hlutum og fólki fara aftur að slá. Eitthvað nýtt knýr dyra hjá okkur, eitthvað sem við verðum að hleypa inn og hlýða á.
Við erum nálægt náttúrunni, hið raunsæja er nátengt því yfirnáttúrulega, við tæmum íbúðina þegar einhver deyr svo að nýtt líf megi flytja inn. Við erum líka í alls konar birtu, kannski fyrst og fremst af því taginu sem lampi varpar skáhallt á viðfang svo að hægt sé að skoða það. Hér lýsir Linda Örtenblad lífi á svo tónvissan og gaumgæfilegan hátt að um leið endurskrifar hún lífið sjálft. Engu líkara en hún vilji minna okkur á eftirfarandi spurningu: Hver segir að allt skuli áfram vera eins og það hefur verið?
Allt fær að taka sinn tíma, textinn lötrar áfram en þó án þess að verða langdreginn.
Í gegnum öll þessi örlög sem berast fyrir vindinum má greina hræðslu sem mætti ætla að maður fyndi aðeins fyrir í bernsku. Hér eru þó engar hryllingssögur á ferð, engin ódýr brögð, ekkert sem snýr öllu á hvolf en á sér um leið einfalda skýringu. Hins vegar má finna í bókinni afar sannfærandi framtíðarspár, frásagnir sem eru sagðar af slíkri kunnáttu að lesandinn fyrirgefur alla útúrdúra og getur til dæmis hlýtt á móður sögumannsins segja frá um leið og hann lærir að bíða eftir framhaldinu og geta sér til um það. Þetta er nú. Það var þá. Og hvað nú?
Örtenblad á engan sinn líka meðal sænskra smásagnahöfunda. Hún framandgerir heiminn til þess að gera hann – ekki skiljanlegan – en ef til vill raunverulegri en ella. Í smásögunum má greina sóttheitt og taugaspennt andrúmsloft sem leiðir hugann að Kafka og Poe; höfundurinn hefur ekki áhuga á að koma á snyrtilegri röð og reglu heldur leitast fremur við að vekja furðu og torvelda hlutina. Með öðrum orðum, einmitt það sem bókmenntir eiga að gera.
Þó að svo færi að Linda Örtenblad skrifaði aldrei fleiri bækur, þá er Kartotek över döda och återuppståndna í raun heildstætt höfundarverk.
Linda Örtenblad er fædd 1972 og sendi frá sér frumraunina Den anatomiska teatern árið 2004. Sú bók, sem vakti mikla athygli, samanstóð af frásögnum um það sem gerst getur í fjöru, í skóginum, í vetrargarði eða í nýgömlum minningum sem skolar yfir okkur.