Marjun Syderbø Kjelnæs

Ljósmyndari
JDK-foto
Marjun Syderbø Kjelnæs: Marta, Marta, skáldsaga, Ungu Føroyar, 2024. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Marta, Marta (kom út á íslensku hjá Uglu útgáfu 2025 í þýðingu Hjálmars Waag Árnasonar) er skáldsaga með tvískipt sögusvið þar sem segir frá færeyskri aðalpersónu: ungri konu sem ferðast til Ísrael snemma á tíunda áratugnum til að vinna á samyrkjubúi, og svo daglegu lífi hennar í Færeyjum nútímans þegar stríðið milli Ísraels og Palestínu hefur brotist út í kjölfar árásarinnar þann 7. október 2023. Konan hefur alist upp í trúuðu samfélagi í Færeyjum þar sem fólk hefur mikla samúð með málstað Ísraels og stríðið kemur henni til að rifja upp þann tíma sem hún starfaði á samyrkjubúinu. Hér er lýst bjartsýni og draumi um frið á svæðinu. Árið er 1993, Yasser Arafat og Yitzhak Rabin hafa nýlega tekist í hendur og stuttu seinna er Óslóarsamkomulagið undirritað.

Á samyrkjubúinu mætist fólk af alls konar þjóðernum, líkt og í smækkuðum alheimi hnattrænna stjórnmála og alþjóðlegra átaka. Fólkið ræðir raunverulega atburði af bæði bölsýni og bjartsýni, tekur upp hanskann fyrir afstöðu eigin heimalands og gagnrýnir þá pólitík sem rekin er í öðrum löndum. Mitt í öllu þessu stendur Marta og hlustar. Hvað hefur hún fram að færa? Hvaða sjónarhorni, skoðun eða pólitík getur hún talað fyrir?

Kjarni bókarinnar hverfist um afstöðu. Hvað merkir það að taka afstöðu, að hafa skoðun á máli og mögulega skipta um skoðun? Hverju erum við trú, og hvað felst í því að ganga gegn því sem við trúum á?

Þetta er skáldsaga um pólitískt eldfimt efni, en um það er fjallað á ljóðrænan og alls ekki dramatískan hátt með því að beina sjónum fyrst og fremst að innra lífi Mörtu. Með sínum hægláta hætti „neyðir“ bókin lesendur til að grandskoða heiminn og hugleiða að þótt við virðumst búa í aðskildum heimum eru þeir engu að síður tengdir, og að við skuldum öðru fólki það að horfa opnum augum á atburði líðandi stundar og taka virka afstöðu til þeirra.

 

Marjun Syderbø Kjelnæs (f. 1974) er eftirtektarverð rödd í færeyskum bókmenntum. Auk skáldsagna hefur hún sent frá sér barnabækur, ungmennabækur, ljóðabækur, smásögur og leikrit. Marjun hefur hlotið fjölda verðlauna, nú síðast M.A. Jacobsen-bókmenntaverðlaunin 2025 fyrir bókina Marta, Marta. Verk hennar hafa verið þýdd á norðurlandamál, ensku, þýsku og frönsku.

Tengiliður