Quynh Tran
När andra njuter („Þegar aðrir njóta“, hefur ekki komið út á íslensku) er lágstemmd en beitt skáldsaga um losta, vald og það að tilheyra. Sögusviðið er Svíþjóð samtímans, nánar til tekið Skánn.
Lana er sextán ára gömul dóttir Maggie, sem er frá Víetnam og vinnur á japanskri snyrtistofu. Móðir og dóttir mætast á heimilinu en eiga lítil samskipti. Hins vegar er ástalíf Lönu þeim báðum hugleikið, en það liggur í dvala sem stendur. Lana býr yfir getu til að beita ofbeldi sem varla er tjáð beinum orðum, en sem getur komið henni til að hegða sér óútreiknanlega. Maggie minnist síns fyrra lífs í Víetnam, karlmanna sem komu og fóru, og á annríkt á snyrtistofunni. Báðar þrá þær ástina en hafa lært að hafa varann á sér gagnvart umheiminum. Hvað dreymir Lönu um? En Maggie?
Quynh Tran leyfir lesandanum að taka þátt í sköpun textans og fylgja þeim þráðum sem lagðir eru fram. Þetta er saga um stétt, kyn, uppruna og losta þar sem höfundurinn er jafnvökull og persónur hans: engar sálfræðigreiningar eru settar fram, ekkert er útskýrt til fulls. Þess í stað er bókin borin uppi af stilltri kímni og einstæðri fagurfræðilegri sýn þar sem háskólaborgin Lundur birtist lesandanum ljóslifandi, urmullinn af fólki sem allt lifir sjálfstæðu lífi á meðan höfundurinn beinir linsu að tveimur lífum sem annars hefðu aldrei lokist upp fyrir okkur.
Mæðgnasamband er frábær uppspretta efniviðar fyrir Tran. Hann sýnir lesandanum hve heilindi fólks geta verið dýru verði keypt og hvernig ákveðin sýn á heiminn getur gengið gegnum kynslóðir í fjölskyldu án þess að fólk sé meðvitað um það. Hvað þýðir það að horfa á annað fólk njóta einhvers, taka þátt eða standa utangarðs? Hvernig getur umheimurinn verið svo upptekinn af ómerkilegum hlutum þegar maður geymir sjálfur myrkur innra með sér? Og er einhver leið út úr eigin sjálfi? Tran spyr að öllu þessu í skáldsögu sem er skemmtileg og spennandi en jafnframt hárbeitt.
Quynh Tran (fæddur 1989) er finnlandssænskur rithöfundur, uppalinn í Jakobstad í Finnlandi og búsettur i Malmö. Hann er menntaður sálfræðingur og starfar sem rithöfundur í Svíþjóð og Finnlandi. Frumraun hans, skáldsagan Skugga och svalka, kom út 2021 og aflaði höfundinum Runeberg-verðlaunanna, bókmenntaverðlauna finnlandssænska ríkisútvarpsins og frumraunarverðlauna Borås tidning. Hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála.