Sólrún Michelsen och Annika Øyrabø

Ljósmyndari
Klara Johannesen / Sarah Walther Øyrabø
Sólrún Michelsen och Annika Øyrabø (myndhöf.): Sjókæti (A–OY), stafrófsbók, Bókadeild Føroya Lærafelags, 2025. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Sjókæti (A–OY) er ljóðræn og gáskafull stafrófsbók sem færir lesandann niður í sjó og gegnum færeyska stafrófið. Við ferðumst frá A til OY, í gegnum 29 bókstafi og þrjú tvíhljóð, þar sem hver síða býður upp á nýja fundi við fiska og önnur sjávardýr í landhelgi Færeyja. 

Með stuttum og taktföstum versum skapar Sólrún Michelsen texta sem auðvelt er að lesa upphátt og erfitt að segja skilið við. Rímið býr yfir tónlist og lágstemmdri orðagleði sem býður börnum og fullorðnum að bragða á hljóðunum, endurtaka þau og uppgötva. Sú grunnhugmynd bókarinnar að láta stafrófið „synda“ gerir lesturinn að skynrænni og virkri upplifun þar sem máltaka og forvitni fléttast saman. 

Myndir Anniku Øyrabø eru litríkar, skrýtnar og fullar af kímni. Þær teygja leik bókarinnar að tungumálinu inn í alveg jafn gáskafullan myndheim. Klippimyndir Øyrabø skapa nánast áþreifanlega tjáningu með ýmsum lögum, áferðum og óvæntum sjónrænum smáatriðum sem eiga í nánu samspili við rímið. Sjávardýrin birtast sem mismunandi persónuleikar og samspil orða og mynda skapar sterka framvindu þar sem börn geta „lesið“ myndirnar áður en þau hafa lært að lesa textann. 

Um leið hefur bókin sérstakt menningarlegt vægi: Hún eflir og víkkar út lítið málsvæði með því að gefa börnum (og fullorðnum) ríkulegan orðaforða sem tengist hafinu umhverfis eyjarnar. 

Slagkraftur bókarinnar var staðfestur þegar hún var valin á lista The White Ravens 2025 („International Youth Library), þar sem hún var sögð vera sterkt bókmenntalegt og sjónrænt dæmi um stafrófsbók með staðbundið samhengi og hnattræna skírskotun. 


Sólrún Michelsen (f. 1948) er einn sérstæðasti og fjölhæfasti rithöfundur Færeyja. Hún skrifar fyrir bæði börn og fullorðna og hefur einnig þýtt fjölda barnabóka á færeysku. Hún hefur meðal annars hlotið bókmenntaverðlaun Þórshafnar tvívegis, í flokki barnabóka árið 2002 og í flokki fagurbókmennta árið 2008. Í Sjókæti notar Michelsen hljóð, takt og orðaleiki sem inngang að lestrargleði og þekkingu. 


Annika Øyrabø (f. 1977) er hönnuður og myndhöfundur. Hún nam við danska hönnunarskólann og Hochschule für Angewandte Wissenschaften í Hamborg. Øyrabø hefur myndlýst fjölda barnabóka og í Sjókæti þróar hún áfram sitt sérstæða myndmál í myndheimi sem er í senn grafískt knappur og gáskafullur. Klippimyndir ljá bókinni kunnugleg einkenni og gera myndlýsingarnar að virkum sögumanni sem víkkar út textann og ávarpar ímyndunarafl og túlkun lesandans.