Þórarinn Eldjárn og Þórarinn Már Baldursson
Rímnaflokkurinn Dótarímur eftir Þórarinn Eldjárn samanstendur af tíu rímum fyrir börn. Rímur eru sérstakt afbrigði söguljóða sem hefur djúpa menningarlega og þjóðfræðilega merkingu á Íslandi. Segja má að íslenskur skáldskapur hafi lifað í því formi um langt skeið, eða frá síðari hluta miðalda fram á nítjándu öldina.
Í rímum er oftast sögð saga, og hjá Þórarni eiga barnaleikföngin, dótið, sögusviðið. Rímurnar tíu eru hver um sig helgaðar ákveðnu leikfangi eða hlut. Í hverri rímu fær tiltekið dót kynningu eða inngang, sem samkvæmt hefðinni heitir mansöngur, og á eftir honum kemur saga eða ævintýri í bundnu máli sem tengist hverju leikfangi. Með þessum hætti kynnir Þórarinn lesendum fjölbreytt úrval leikfanga, allt frá bolta og böngsum til kubba og vinnuvéla, og skoðar hvernig þessi hlutir hafa áhrif á líf og ímyndunarafl barna. Þar er einnig ríma sem fjallar um bækur og undirstrikar mikilvægi lestrar og ímyndunarafls í lífi barna. Lestrinum er stillt upp sem mótvægi við hraðfara afþreyingu á skjá, sem skilar ekki sömu þroskandi upplifun.
Form ljóðsins hvetur unga lesendur sem eru að læra á töfra tungumálsins til að hægja á lestrinum og staldra við orð og myndmál. Það er því viðeigandi að lokaríman skuli fjalla um skemmtilegasta dótið, sjálfa íslenskuna. Tungumálið er besta leikfangið, því að það gerir okkur kleift að skapa allt milli himins og jarðar. Íslenskan, móðurmál höfundar, er þannig í aðalhlutverki í lok verksins, en mikilvægi leiks og skapandi hugsunar má heimfæra á öll önnur tungumál.
Þórarinn Már Baldursson hefur skapað húmorískan myndheim sem dýpkar upplifun lesandans, vinnur fallega með rímunum og eykur listrænt gildi verksins. Myndirnar eru bæði litauðugar og hugmyndaríkar, og endurspegla þannig leikandi eðli ljóðanna.
Bækur Þórarins Eldjárns hafa ávallt einkennst af húmor og skarpskyggni og Dótarímur eru engin undantekning frá því. Hann tekst í bókinni á við hversdagslega hluti úr lífi barna og setur þá í samhengi við rímnahefðina með „nýjum“ og skemmtilegum hætti sem vekur bæði hlátur og íhugun.
Þórarinn Eldjárn (f. 1949) hefur lagt mikið af mörkum til íslenskrar bókmenntasögu með fjölbreyttum skrifum fyrir bæði börn og fullorðna. Hann hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar, þar á meðal sérstaka viðurkenningu frá Sænsku akademíunni árið 2013. Þórarinn Már Baldursson (f. 1977) er víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, rithöfundur og myndhöfundur í hjáverkum. Bækur sem hann hefur myndskreytt hafa hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, Fjöruverðlaunin og Íslensku barnabókaverðlaunin.