Atvinnurekstur á Álandseyjum
Álandseyjar hafa sjálfstjórn hvað varðar atvinnurekstur og sækja þarf um rekstrarleyfi hjá landsstjórn Álandseyja til að reka þar fyrirtæki. Að öðru leyti gilda að mestu finnskar reglur um stofnun fyrirtækis. Finna má nánari upplýsingar á síðunni „Fyrirtæki í Finnlandi“.
Stofnun fyrirtækis á Álandseyjum
Áður en þú stofnar fyrirtæki þarftu meðal annars að kynna þér hvaða leyfa og skráninga er krafist fyrir þína tegund fyrirtækis. Auk tilkynningar um stofnun til einkaleyfa- og skráningarstofu (PRS) og skattayfirvalda þarf að fá rekstrarleyfi á Álandseyjum frá landsstjórn Álandseyja.
Allt eftir lögsögu og tegund fyrirtækis sem á að stofna er það landsstjórn Álandseyja, svæðisskrifstofa Álandseyja eða annað yfirvald sem veitir leyfið.
Lesa má nánar um stofnun fyrirtækis á Álandseyjum í leiðbeiningunum um stofnun fyrirtækis. Þar eru gefnar ítarlegri upplýsingar um hvernig skal bera sig að við skipulag og stofnun fyrirtækis, val á tegund fyrirtækis, leyfi, skráningar og fleira. Ålands Näringsliv, sem heldur leiðbeiningunum úti, eru regnhlífarsamtök atvinnulífsins á Álandseyjum. Þau veita ókeypis aðstoð með sem tengist atvinnurekstri á Álandseyjum. Á vefsíðu landsstjórnarinnar um atvinnulíf og atvinnurekendur má finna samantekt á upplýsingum fyrir atvinnurekendur á Álandseyjum.
Álensk fyrirtæki á Norðurlöndum
Stofnun fyrirtækis við atvinnuleysi
Fólk sem er í atvinnuleit hjá Miðstöð vinnumarkaðar og námsaðstoðar á Álandseyjum (AMS) og hefur í huga að stofna fyrirtæki getur fengið ráðningarstyrk eða haldið áfram að fá atvinnuleysisbætur við stofnun fyrirtækisins.
Einstaklingar sem hafa skráð sig í atvinnuleit hjá AMS geta fengið ráðningarstyrk við stofnun fyrirtækis. Einstaklingar í atvinnuleit fá atvinnuleysisbætur og geta áfram þegið þær fyrstu fjóra mánuðina við stofnun fyrirtækis. Sjá nánar á vefsíðu AMS um stofnun fyrirtækis.
Rekstrarleyfi á Álandseyjum
Öll fyrirtæki sem vilja hafa starfsemi á Álandseyjum verða að sækja um rekstarleyfi hjá landsstjórn Álandseyja áður en starfsemin hefst. Sótt er um rekstarleyfi eftir að umsókn um stofnun fyrirtækis hefur verið send inn og fyrirtækið hefur fengið FO-númer.
Við iðkun starfsgreinar þarf tungumálið að vera sænska og iðkandinn þarf að hafa álenskan heimabyggðarrétt eða hafa búið á Álandseyjum í fimm samfelld ár. Við stofnun einkahlutafélags eða hlutafélags þarf yfirleitt einn hluthafanna eða stjórnarmannanna að hafa heimabyggðarrétt eða hafa búið á Álandseyjum í fimm ár samfellt.
Einnig er hægt að sækja um tímabundið rekstarleyfi. Þá fellur landsstjórn Álandseyja frá kröfu um aðsetur fyrirtækisins og reglum um samsetningu stjórnar og hluthafa. Nánari upplýsingar um rekstarleyfi á Álandseyjum er að finna á vefsíðu landsstjórnarinnar.
Álensk fyrirtæki erlendis
Álensk fyrirtæki sem vilja hasla sér völl eða eiga viðskipti annars staðar á Norðurlöndum geta leitað liðsinnis Ålands Näringsliv. Þau veita meðal annars ráðgjöf um fyrirtæki og skatta og eru regnhlífarsamtök atvinnulífsins á Álandseyjum. Nánari upplýsingar eru á síðunni um alþjóðaviðskipti á vefsvæði Ålands Näringsliv.
Á evrópsku vefgáttinni Your Europe geturðu kynnt þér reglur um stofnun fyrirtækis í öðrum ESB-/EES-löndum.
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um atvinnurekstur annars staðar á Norðurlöndum og hvert skal leita vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.