Einkunnaskalar í Finnlandi

Hér finnur þú upplýsingar um mismunandi matsskala sem notaðir eru í finnskum skólum, um samsvörun ólíkra skala og mat á fyrri einkunnum ef sótt er um nám í öðru norrænu landi.

Í grunnskólum, menntaskólum, iðnskólum, háskólum og iðnháskólum Finnlands er notast við mismunandi matsskala. Á þessari síðu er fyrst og fremst fjallað um það hvernig fyrra nám þitt er metið ef þú sækir um nám á háskólastigi í Finnlandi.

Matsskalar á mismunandi skólastigum

Í finnskum grunnskólum og menntaskólum er notast við matsskala á bilinu 4–10, í iðnskólum er skalinn 1–5 og í háskólum og iðnháskólum 0–5.

Þeir einkunnaskalar sem notaðir eru í Finnlandi eru ekki staðalbundnir og samsvara því ekki fyllilega hinu evrópska ECTS-einkunnakerfi. Finnskir einkunnaskalar byggjast með öðrum orðum ekki á áætlaðri dreifingu mismunandi einkunna, eins og ECTS-skalinn gerir, heldur byggist einkunn hvers nemanda á persónulegri frammistöðu hans.

Grunnskóli og menntaskóli

Í finnskum grunnskólum og menntaskólum er notast við einkunnaskalann 4–10. Skalinn samanstendur af eftirfarandi einkunnum:

  • 10 og 9, næst því að jafngilda A á ECTS-skalanum (ágætt)
  • 8, næst því að jafngilda B á ECTS-skalanum (mjög gott)
  • 7, næst því að jafngilda C á ECTS-skalanum (gott)
  • 6, næst því að jafngilda D á ECTS-skalanum (sæmilegt)
  • 5, næst því að jafngilda E á ECTS-skalanum (viðunandi)
  • 4, næst því að jafngilda FX / F á ECTS-skalanum (fall)

Í 1.–3. bekk grunnskóla í Finnlandi má gefa nemendum annaðhvort skriflegan vitnisburð eða tölulegar einkunnir og er sú ákvörðun í höndum umsjónaraðila kennslunnar. Í 4.–8. bekk eru tölulegar einkunnir gefnar í lok skólaárs og í sumum tilvikum á miðju skólaári. Tölulegar einkunnir eru einnig gefnar við útskrift úr grunnskóla að loknum 9. bekk. Nánari upplýsingar um námsmat í finnskum grunnskólum eru á vefsvæði fræðsluráðs í Finnlandi (Opetushallitus).

Í menntaskóla eru ýmist gefnar tölulegar einkunnir eða frammistöðueinkunnirnar S = staðist (suoritettu) eða H = fallið (hylätty). Vilji nemandi sitja námskeið hjá annarri menntastofnun og fá árangurinn metin inn í menntaskólanámið eru þær einkunnir yfirfærðar yfir á einkunnaskala menntaskólans. Tafla sem sýnir samsvörun einkunna og nánari upplýsingar um námsmat eru á vefsvæði fræðsluráðs í Finnlandi.

Fyrir stúdentspróf í Finnlandi eru gefnar einkunnirnar L, E, M, C, B, A og I. Þar af tákna L–A að nemandi hafi staðist en I táknar fall. Nánari upplýsingar um einkunnagjöf í Finnlandi eru á vefsvæði finnsku stúdentsprófanefndarinnar.

Iðnnám á grunn- og háskólastigi og háskólanám

Í grunnnámi iðnskóla í Finnlandi er notast við matsskala á bilinu 1–5 og í háskólum og iðnháskólum er skalinn 0–5. Skalinn samanstendur af eftirfarandi einkunnum:

  • 5, næst því að jafngilda A á ECTS-skalanum (ágætt)
  • 4, næst því að jafngilda B á ECTS-skalanum (mjög gott)
  • 3, næst því að jafngilda C á ECTS-skalanum (gott)
  • 2, næst því að jafngilda D á ECTS-skalanum (sæmilegt)
  • 1, næst því að jafngilda E á ECTS-skalanum (viðunandi)
  • 0, næst því að jafngilda FX / F á ECTS-skalanum (fall)

Í iðnnámi er námsmatið tengt frammistöðu á vinnumarkaði og byggist einnig á viðmiðum um tiltekna kunnáttu. Í starfsmenntun og sérhæfðri starfsmenntun er notast við einkunnirnar staðist – fallið. Þá getur lokaeinkunnin verið „staðist“. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Fræðsluráðs Finnlands.

Einnig er hægt að notast við staðist/fallið-skala í námi á háskólastigi, en slíkt þarf að tilgreina fyrir fram í kennsluáætlun. Nánari upplýsingar veita nemendaþjónustur háskólanna.

Yfirfærsla einkunna frá öðrum löndum til finnska einkunnakerfisins

Ef þú hefur lokið framhaldsskólanámi í öðru landi en Finnlandi og hefur ekki European Baccalaureate-gráðu (EB) eða International Baccalaureate-gráðu (IB) getur þú ekki fengið inngöngu í nám á háskólastigi í Finnlandi út á stúdentsskírteini eitt og sér. Þá verður þú að þreyta inntökupróf og í slíkum tilfellum er ekki nauðsynlegt að umreikna einkunnir úr fyrra námi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Nám á háskólastigi í Finnlandi.

Hafir þú lokið European Baccalaureate-gráðu (EB) eða International Baccalaureate-gráðu (IB) getur þú fundið upplýsingar um mat á námsgráðum á netinu. Upplýsingar vegna umsóknar um háskólanám eru á Yliopistovalinnat.fi. og upplýsingar vegna umsóknar um iðnháskólanám eru á Uasinfo.fi.

Ef þú hefur lokið hluta af námi þínu utan Finnlands og vilt fá það metið inn í finnska námsgráðu skaltu leita til viðkomandi menntastofnunar.

Ætlir þú að sækja um nám á framhaldsskólastigi á grundvelli prófskírteinis frá öðru landi skaltu skoða síðuna Framhaldsskólanám í Finnlandi.

Yfirfærsla finnskra einkunna milli landa

Ef þú sækir um nám í öðru landi á grundvelli náms sem þú laukst í Finnlandi þarft þú ekki sjálf(t)(ur) að sjá um að yfirfæra einkunnir þínar samkvæmt kerfi viðkomandi lands.

Upplýsingar um yfirfærslu einkunna milli landa má finna á eftirfarandi hátt:

  • Danmörk: Upplýsingar eru í Eksamenshåndbogen. Veldu fyrst land úr fellilistanum og síðan orðið „Karakterer“ í gráu línunni fyrir neðan fellilistann.
  • Ísland: Sá skóli sem þú sækir um nám í tekur ákvörðun um hvort einkunnakerfi teljist sambærileg. Nánari upplýsingar um háskólanám eru á síðunni Nám á háskólastigi á Íslandi.
  • Noregur: Upplýsingar eru á síðunni Samordna opptak.
  • Svíþjóð: Upplýsingar eru á síðunni Antagning.se.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.