Húsnæðisstyrkur á Álandseyjum

Á þessari síðu er vísað á upplýsingar um almennan húsnæðisstyrk og húsnæðisstyrku fyrir lífeyrisþega. Einnig eru gefnar upplýsingar um húsnæðisstyrk fyrir námsfólk og upphæð húsnæðisstyrksins fyrir íbúa Álandseyja.

Á Álandseyjum er það FPA sem hefur umsjón með almennum húsnæðisstyrk og húsnæðisstyrk fyrir lífeyrisþega. Húsnæðisstyrnum er ætlað að minnka húsnæðiskostnað heimila og lífeyrisþega með lágar tekjur. Almenni húsnæðisstyrkurinn er veittur einu heimili í sameiningu og heildartekjur heimilisins hafa áhrif á upphæð hans. Vinnumarkaðs- og námsþjónustustofnun Álandseyja (AMS) ber ábyrgð á húsnæðisstuðningi fyrir námsfólk.

Á síðunni „Húsnæðisstyrkur í Finnlandi“ má lesa nánar um almenna húsnæðisstyrkinn og húsnæðisstyrk fyrir lífeyrisþega.

Upphæð almenna húsnæðisstyrksins á Álandseyjum

Almenni húsnæðisstyrkurinn á Álandseyjum er reiknaður á annan hátt en á meginlandi Finnlands. Á Álandseyjum er almenni húsnæðisstyrkurinn 80% af hámarkshúsnæðiskostnaði eða samþykktum húsnæðiskostnaði eftir að grunnupphæð hefur verið dregin frá, sem er 42%. Lesa má nánar um almenna húsnæðisstyrkinn á vefsíðu FPA.

Húsnæðisstyrkur fyrir námsmenn

Almennur húsnæðisstyrkur frá FPA er ekki veittur námsmönnum á Álandseyjum sem leigja húsnæði á Álandseyjum eða á finnska meginlandinu. Finnskir námsmenn sem leigja á Álandseyjum geta hins vegar sótt um húsnæðisstyrk frá FPA. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu FPA um húsnæðisstyrk fyrir námsmenn.

Húsnæðisstyrkur fyrir námsmenn á og frá Álandseyjum er hluti af fjárhagsaðstoð námsmanna og er hann veittur af miðstöð vinnumarkaðar og námsaðstoðar á Álandseyjum (AMS). Ef þú uppfyllir skilyrði almenns námsstyrks eða námstyrks fyrir fullorðna getur þú sótt um húsnæðisstyrk. Húsnæðisstyrkurinn samsvarar 80% af húsnæðiskostnaði eða að hámarki 269 evrur á mánuði. Nánari upplýsingar um húsnæðisstyrkinn er að finna á vef AMS.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um húsnæðisstyrki í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.