Leiðbeiningar: tímabundin dvöl í Noregi

Ljósmyndari
Photo by Alex wong on Unsplash
Í þessum leiðbeiningum eru gefnar upplýsingar um tímabundna dvöl í Noregi án þess að skrá þar lögheimili, það er að segja skemur en í sex mánuði. Ef þú hyggst flytja til Noregs finnur þú gagnlegar upplýsingar í leiðbeiningum okkar: flutt til Noregs.

Koma til Noregs og skráning í þjóðskrá

Norrænir ríkisborgarar sem ferðast til Noregs frá öðru norrænu landi þurfa ekki að sýna fram á dvalarleyfi í Noregi en gætu verið beðnir um að sína skilríki og staðfestingu á ríkisfangi sínu. Því þarftu alltaf að hafa gild persónuskilríki með þér þegar þú ferðast til Noregs.

Ef þú hyggst dvelja í Noregi lengur en í sex mánuði þarftu að tilkynna flutninginn til Noregs og skrá þig í þjóðskrá.

Sérstakar reglur gilda um ferðir til og dvöl á Svalbarða. Þær er að finna í greininni hér að neðan.

Skattar við tímabundna dvöl í Noregi

Ef þú hvorki býrð né starfar í Noregi og dvelur ekki lengur en sex mánuði í landinu berð þú alla jafna ekki skattskyldu í Noregi. Á því geta þó verið undantekningar. Hafðu samband við Skatteetaten ef þú ert í vafa.

Upplýsingar um skatta er einnig að finna á norrænu skatta- og upplýsingagáttinni (Nordisk eTax).

Almannatryggingar við tímabundna dvöl í Noregi

Að tilheyra almannatryggingakerfi lands þýðir að reglur viðkomandi lands gilda meðal annars um eftirfarandi:

  • atvinnuleysisbætur
  • lífeyri
  • sjúkradagpeninga
  • barnabætur
  • heilbrigðisþjónustu
  • fæðingarorlofsgreiðslur

Meginreglan er sú að þú tilheyrir almannatryggingakerfi þess lands sem þú starfar í. Ef þú ert ekki í vinnu tilheyrir þú að meginreglunni til almannatryggingakerfi búsetulands þíns. Sérstakar reglur gilda þó í sumum tilfellum. Þú skalt því hafa samband við tryggingastofnun í landinu sem þú býrð í ef þú ert í vafa um hvað á við í þínum aðstæðum.

Réttur til heilbrigðisþjónustu við tímabundna dvöl í Noregi

Allir sem dvelja í Noregi fá heilbrigðisþjónustu þegar þörfin er brýn. Ef þú býrð tímabundið í Noregi og veikist eða slasast áttu rétt á að fá læknisþjónustu.

Þótt þú eigir rétt á heilbrigðisþjónustu þarftu að greiða hluta sjúklings af lækniskostnaði („egenandel“). Yfirleitt þarf einnig að framvísa nafnskírteini eða Evrópska sjúkratryggingaskírteininu.

Erlendir bílar í Noregi

Ef þú getur sýnt fram á að þú hafir fasta búsetu utan Noregs eða að þú dveljir tímaundið í Noregi getur þú flutt inn og notað tímabundið bíl sem skráður er erlendis í Noregi án þess að greiða gjöld.

Ferðast með gæludýr til Noregs

Þegar ferðast er til Noregs með gæludýr þarf að athuga reglurnar áður en haldið er af stað. Það hvaða reglur gilda getur farið eftir hvaðan þú kemur, hvernig dýr á að ferðast með, aldri dýrsins og fleira.

Tryggingar við dvöl í Noregi

Hafðu samband við tryggingafélagið þitt til að athuga hvort þú sért tryggð(ur) á meðan þú ert í Noregi.

Bankaþjónusta í Noregi við tímabundna dvöl

Til að geta orðið viðskiptavinur banka í Noregi þarftu að geta sýnt frá á hver þú ert. Það gerir þú með því að framvísa gildum persónuskilríkjum og skjölum í bankaútibúi. Að öllu jöfnu þarftu að vera með norska kennitölu eða norskt D-númer til þess að geta stofnað bankareikning í Noregi.

Spyrja Info Norden

Þú getur fyllt út fyrirspurnareyðublað okkar ef þú hefur spurningar eða hefur lent í hindrunum í öðru norrænu landi.

Ath.! Ef spurningin varðar meðhöndlun tiltekins máls, umsóknar eða persónulegra aðstæðna skaltu hafa samband við viðeigandi yfirvöld.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.