Nám á fullorðinsaldri í Finnlandi

Hér er sagt frá möguleikum til náms á fullorðinsaldri í Finnlandi og leiðum til að fjármagna slíkt nám.

Í Finnlandi getur fullorðið fólk stundað nám á öllum skólastigum. Fullorðnir geta stundað námið í vinnu, samhliða vinnu eða í frítíma sínum. Hægt er að fá styrk til náms í sumum námsleiðum.

Hvað er hægt að læra á fullorðinsaldri í Finnlandi?

Fyrir fullorðna er til dæmis í boði iðnskólanám á grunnstigi, framhaldsstigi og í sérnámi, háskólanám, nám á grunnskólastigi, menntaskólanám, símenntun og endurmenntun og frjáls fullorðinsfræðsla.

Nám sem lokið er á fullorðinsaldri veitir sömu möguleika á framhaldsnámi og nám sem lokið er fyrr á ævinni. Nánari upplýsingar um nám á fullorðinsaldri í Finnlandi eru á vefsvæði StudyInfo og nánari upplýsingar um nám á mismunandi skólastigum eru á vefsvæði Info Norden.

Svonefndri frjálsri fullorðinsfræðslu lýkur ekki með námsgráðu. Frjáls fullorðinsfræðsla er í boði í finnskum lýðskólum, sumarháskólum, íþróttanámsmiðstöðvum og símenntunarmiðstöðvum. Þessar menntastofnanir bjóða meðal annars nám í ýmsum samfélagsgreinum, almennt nám og einnig námskeið sem miða að aukinni þekkingu á og færni í áhugamálum nemenda. Nánari upplýsingar um nám og umsóknarferli eru á heimasíðum viðkomandi námsstofnana.

Frekari upplýsingar um tungumálanám í Finnlandi eru á síðunni Tungumálanámskeið í Finnlandi.

Hvaða styrk get ég fengið vegna náms á fullorðinsaldri í Finnlandi?

Bæði eðli námsins og aðstæður þínar hafa áhrif á það hvernig styrk þú getur fengið til náms á fullorðinsaldri Í Finnlandi. Möguleg styrkjaform eru námsstyrkur, bætur fyrir nemendur á námssamningi, atvinnuleysisbætur, endurhæfingarstyrkur og auk þess styrkir úr ýmsum sjóðum.

Námsstyrkur fyrir fullorðna nemendur í Finnlandi

Þú getur sótt um námsstyrk vegna náms að loknum grunnskóla. Einnig geta fullorðnir nemar fengið fjárhagsstuðning til að ljúka grunnskólanámi í Finnlandi. 

Nánari upplýsingar um finnskan námsstyrk eru á síðunni Námsstyrkur í Finnlandi.

Önnur styrkjaform fyrir fullorðna nema í Finnlandi

Þú getur líka fjármagnað nám með styrk námsmanna á námssamningi, atvinnuleysisbótum frá Kela eða atvinnuleysissjóði eða margvíslegum styrkjum og sjóðum. Ef þú tekur þátt í starfsendurhæfingu til að komast aftur á vinnumarkað getur þú átt rétt á endurhæfingarstyrk frá Kela. Nánari upplýsingar má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Hvað þarf ég að vita um nám í Finnlandi?

Ef þú kemur til náms í Finnlandi er gott að hafa upplýsingar um húsnæðismál námsmanna, starfsnám, heilbrigðisþjónustu og almannatryggingar, auk afslátta fyrir námsmenn í Finnlandi. Við höfum safnað saman upplýsingum um þessi atriði á síðuna Leiðbeiningar: Nám í Finnlandi.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.