Leiðbeiningar: háskólanám í Finnlandi

Opas: opiskelu Suomessa
Ljósmyndari
Alexis Brown on Unsplash
Háskólanám í Finnlandi er aðgengilegt fyrir alla norræna ríkisborgara á grundvelli Samnings Norðurlandanna um aðgang að æðri menntun. Á þessari leiðbeiningasíðu eru hagnýtar upplýsingar og ábendingar fyrir fólk sem hyggur á nám í Finnlandi, er að hefja nám í Finnlandi eða vantar gátlista yfir mikilvæg atriði tengd námi í Finnlandi.

Hvaða nám er hægt að stunda í Finnlandi? Hvernig sæki ég um nám þar? Hvað þarf að hafa í huga ef maður hefur fundið draumanámið í Finnlandi? Þessi síða vísar þér áfram á upplýsingar um námsmöguleika í Finnlandi, umsóknarferli í háskólum, húsnæðismál, fjármögnun náms og skattlagningu námsmanna, heilbrigðisþjónustu og almannatryggingar háskólanema sem og stúdentakort og stúdentaafslætti. 

Einnig eru hér upplýsingar um einkunnaskala og viðurkenningu á fyrri prófgráðum, sem kemur að gagni ef þú hyggur á framhaldsnám eða vinnu í öðru landi að loknu námi í Finnlandi.

Hvaða nám getur þú stundað í Finnlandi?

Á síðunni Nám á háskólastigi í Finnlandi eru upplýsingar um finnska háskóla og iðnháskóla, námsframboð skólanna og umsóknarferli. Sótt er um háskólanám á þjónustuvefnum  StudyInfo. Þar eru einnig upplýsingar um námsframboð á öðrum skólastigum.

Ef þú hefur áhuga á grunn- eða framhaldsnámi á ensku í finnskum háskóla skaltu skoða síðuna Study in Finland. Þar eru upplýsingar um ýmsar námsleiðir, umsóknarferli og daglegt líf námsmanna í Finnlandi, sem eru sérstaklega ætlaðar erlendum nemum. 

Hvernig sækir þú um nám í Finnlandi?

Norðurlandasamningurinn um aðgang að æðri menntun tryggir öllum íbúum Norðurlanda jafnan umsóknarrétt til náms við opinberar háskólastofnanir í öðrum norrænum löndum á sömu eða sambærilegum forsendum og heimamönnum. Þú getur því sótt um nám í iðnháskóla eða háskóla í sömu umsóknalotu og finnskir umsækjendur. 

Umsóknartímabil fyrir nám á finnsku og sænsku í finnskum iðnháskólum og háskólum er á vorin og haustin, í sameiginlegri rafrænni umsóknalotu á vefsvæðinu StudyInfo. Margar námsleiðir á meistarastigi, einkum þær enskumælandi, eru þó ekki inni í sameiginlega umsóknakerfinu heldur þarf að sækja um gegnum viðkomandi skóla. Nánari upplýsingar um námsleiðir á ensku eru á vefsvæði StudyInfo.

Þú finnur nánari upplýsingar um skóla á háskólastigi og skiptinám í Finnlandi á síðunni Nám á háskólastigi í Finnlandi.

Hvaða hagnýtu atriði er gott að hafa í huga?

Þegar þú kemur til náms í Finnlandi þarftu að huga að ýmsum hagnýtum atriðum. Kynntu þér leiðbeiningasíðu okkar, Leiðbeiningar: að flytja til Finnlands, auk annarra mikilvægra upplýsinga hér fyrir neðan.

Húsnæðismál

Upplýsingar um húsnæði námsmanna eru á síðunni Stúdentaíbúðir í Finnlandi. Almennar upplýsingar um búsetu í Finnlandi eru á síðunni Búseta í Finnlandi. 

Námsfólk sem þiggur fjárhagsaðstoð námsmanna fær húsnæðisstyrkinn yfirleitt frá sama landi og fjárhagsaðstoðina. Kynntu þér réttindi þín hjá viðeigandi stofnun í brottfararlandi þínu. Ef þú þiggur ekki húsnæðisbætur sem hluta af fjárhagsaðstoð námsmanna og átt aðild að almannatryggingum í Finnlandi kannt þú að eiga rétt á almennum húsnæðisstyrk í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Húsnæðisstyrkir í Finnlandi.

Fjármögnun náms og skattlagning

Námsmenn í Finnlandi fjármagna nám sitt yfirleitt með fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Á síðunni Fjárhagsaðstoð námsmanna í Finnlandi er sagt frá því hvernig ríkisborgarar annarra Norðurlanda geta fjármagnað nám í Finnlandi. Þar er einnig sagt frá fjárhagsaðstoð finnskra námsmanna og máltíðastyrk. Ef þú ert fullorðinn nemandi skaltu kynna þér möguleika til að fjármagna nám á síðunni Nám á fullorðinsaldri í Finnlandi.

Þú getur einnig sótt um ýmsa styrki til að fjármagna nám þitt. Slíka styrki má til dæmis skoða í námsstyrkjagagnagrunni sem haldið er úti af Sambandi nemendafélaga háskólanema í Finnlandi. 

Ef þú ætlar að vinna meðfram námi eru hugsanlegt að þú munir þá eiga aðild að almannatryggingum í starfslandinu. Nánari upplýsingar eru á síðunni Hvar átt þú aðild að almannatryggingum? og síðunni Almannatryggingar í Finnlandi fyrir fólk sem býr þar eða starfar.

Upplýsingar um skattlagningu námsfólks eru á síðunni Skattlagning námsmanna í Finnlandi.

Heilbrigðisþjónusta og almannatryggingar

Komir þú til náms í Finnlandi frá öðru norrænu landi er yfirleitt litið svo á að dvöl þín í Finnlandi sé tímabundin. Þá heldur þú almannatryggingum þínum í brottfararlandinu. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði almannatryggingastofnunar í Finnlandi (Kela).

Ef þú veikist á námstíma áttu rétt á heilbrigðisþjónustu námsmanna í því sveitarfélagi þar sem námið er stundað, eða á vegum annarrar stofnunar með umboði sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar eru á síðunni Réttur til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi.

Hefur þú áhuga á starfsþjálfun sem hluta af náminu?

Hyggist þú sækja starfsþjálfun í Finnlandi skaltu fyrst hafa samband við þína menntastofnun. Hægt er að fá pláss í starfsþjálfun á grundvelli samninga sem skólinn sjálfur hefur gert eða í gegnum starfsþjálfunaráætlun Nordplus-verkefnisins, sem dæmi. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði StudyInfo.

Einnig er hægt að komast í starfsnám án milliliða. Margir vinnuveitendur auglýsa starfsnámspláss á vefnum Työmarkkinatori (Vinnumarkaðstorgið). Einnig er hægt að hafa samband beint við vinnuveitandann. Mörg alþjóðleg nemendasamtök halda líka utan um starfsnámspláss. Fræðsluráð Finnlands (Utbildningsstyrelsen/Opetushallitus) er tengiliður erlendra finnskunema í háskólum utan Finnlands við verkefnið „Suomea Suomessa“ (Finnska í Finnlandi).

Laus pláss í starfsnámi og ábendingar um tilhögun starfsnáms má einnig finna á heimasíðu Aarresaari (Fjársjóðseyjunnar), atvinnumiðlunar háskólafólks.

Starfsnemi sem flytur til Finnlands frá öðru norrænu landi heyrir almennt undir almannatryggingakerfi síns fasta búsetulands. Fari mánaðarlaun starfsnema yfir tiltekið lágmarksviðmið er þó litið á viðkomandi sem launamann. Nánari upplýsingar um almannatryggingar eru á síðunni Almannatryggingar í Finnlandi fyrir fólk sem býr þar eða starfar

Fríðindi námsmanna og nemendafélög í Finnlandi

Sem námsmaður í Finnlandi hefur þú aðgang að ýmiss konar fríðindum og þjónustu sem auðveldar daglegt líf og styður við námið. Í köflunum hér að neðan eru upplýsingar um stúdentakort í Finnlandi, afslætti fyrir námsmenn og starfsemi nemendafélaga og aðild að þeim.

Stúdentakort

Erlend stúdentakort eru alla jafna ekki tekin gild í Finnlandi. Hið alþjóðlega ISIC-kort veitir þó einhver fríðindi. Finnskt stúdentakort færðu hjá finnska háskólanum þínum eða nemendafélagi skólans. 

Námsmannaafslættir

Stúdentakort flestra nemendafélaga veita fríðindi sem hægt er að kynna sér á þjónustuvefnum Frank.

Með því að framvísa finnsku stúdentakorti færð þú máltíðir á afsláttarverði í stúdentamötuneytum sem styrkt eru af Kela.

Nemendafélög

Nemendafélög eru starfandi í öllum finnskum skólum á háskólastigi. Öllum sem stunda grunn- eða meistaranám við finnskan háskóla er skylt að eiga aðild að nemendafélagi og greiða því félagsgjald. Aðild að nemendafélagi er valfrjáls fyrir doktorsnema. Tengiliðaupplýsingar nemendafélaganna í finnskum háskólum eru á vefsvæði sambands nemendafélaga háskólanema í Finnlandi (Suomen ylioppilaskuntien liitto eða SYL).

Aðild að nemendafélagi er valfrjáls fyrir nemendur iðnháskóla. Tengiliðaupplýsingar nemendafélaga iðnháskólanna eru á vefsvæði sambands nemendafélaga iðnháskóla (Suomen opiskelijakuntien liitto eða SAMOK).

Viðurkenning og mat á prófgráðum í Finnlandi

Áður en sótt er um nám er gott að kanna hvort að það veitir starfsréttindi eða réttindi til að sækja um framhaldsnám í öðru landi. 

Einkunnaskalar

Upplýsingar um einkunnaskala sem notast er við í Finnlandi og samanburð við einkunnaskala annarra norrænna landa má finna á síðunni Einkunnagjöf í Finnlandi.

Viðurkenning háskóla á prófgráðu frá öðru landi

Háskólar ráða sjálfir hvernig þeir meta nám erlendis inn í námsleiðir sínar. Samningur Norðurlandanna um aðgang að æðri menntun tryggir þó að háskólar á Norðurlöndum viðurkenni nám sem lokið hefur verið við aðra norræna háskóla. Nánari upplýsingar eru á síðunni Nám á háskólastigi í Finnlandi.

Viðurkenning vinnuveitanda á prófgráðum

Ef þú hefur lokið námi í öðru landi er það yfirleitt væntanlegur vinnuveitandi þinn sem sér um að leggja mat á þá færni og getu sem námið hefur veitt þér. Í tilteknum starfsgreinum þarf þó úrskurð frá hinu opinbera til að viðurkenna starfshæfni eða nám frá öðru landi í Finnlandi.

Upplýsingar um viðurkenningu á prófgráðum í Finnlandi, eða í hvaða tilvikum þarf að sækja um sérstakan úrskurð til að fá viðurkenningu á prófgráðu frá öðru landi í Finnlandi eða staðfestingu á starfsréttindum þar, eru á upplýsingasíðum um viðurkenningu á starfshæfni og erlendum prófgráðum í norrænu löndunum.

Aðrir námsmöguleikar í Finnlandi

Ef þú hefur áhuga á menntaskóla- eða iðnskólanámi í Finnlandi, viðbótar- eða símenntun fyrir fullorðna, námi við óháðar menntastofnanir eða finnsku- eða sænskunámskeiðum í Finnlandi getur þú fundið nánari upplýsingar hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.