Fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi

Á þessari síðu eru upplýsingar um fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi, þ.e. námsstyrk, námslán og húsnæðisbætur auk annarra styrkja sem bjóðast námsmönnum. Hér eru einnig upplýsingar um stuðning sem þú getur fengið ef þú veikist eða eignast barn á námstíma í Finnlandi.

Tilgangur fjárhagsaðstoðar vegna náms er að tryggja framfærslu námsfólks á námstímanum. Að vissum skilyrðum uppfylltum er einnig hægt að fá fjárhagsaðstoð frá Finnlandi vegna náms í öðru landi. Umsjón með fjárhagsaðstoð vegna náms hefur finnska almannatryggingastofnunin (Kela). Auk fjárhagsaðstoðar og námslána getur námsfólk átt rétt á húsnæðisbótum og í sumum tilfellum máltíðastyrk eða ferðastyrk til að komast í skólann.

Ef þú ert fullorðinn námsmaður skaltu kynna þér bætur og styrki fyrir fullorðna námsmenn á síðunni Nám á fullorðinsaldri í Finnlandi.

Ef þú stundar nám á Álandseyjum skaltu kynna þér síðuna Fjárhagsaðstoð vegna náms á Álandseyjum.

Hvað felst í fjárhagsaðstoð vegna náms og hversu mikið er hægt að fá?

Í Finnlandi er hægt að fá fjárhagsaðstoð til að fjármagna nám. Aðstoðin samanstendur af námsstyrk, ríkistryggðu námsláni og húsnæðisbótum sem eru hluti námsstyrks.

Námsstyrkur í Finnlandi

Upphæð námsstyrks fer eftir aldri þínum, staðsetningu námsins, búsetuhögum þínum og hjúskaparstöðu og því hvort þú eigir börn. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela. Þú getur líka notað reiknivél á vefnum til að finna út hvort þú eigir rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms og hversu mikið þú getir fengið.

Námsstyrkurinn telst til skattskyldra tekna. Hafir þú ekki aðrar tekjur en námsstyrkinn þarftu þó ekki að greiða af honum skatt. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Námslán í Finnlandi

Námslán í Finnlandi eru ríkistryggð lán sem þarf að endurgreiða. Ef almannatryggingastofnun í Finnlandi (Kela) veitir þér ábyrgð fyrir láni þínu þarftu enga aðra tryggingu. Þú semur um vexti námsláns og endurgreiðslutilhögun við bankann þinn.

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Húsnæðisbætur í Finnlandi

Þú getur fengið húsnæðisbætur ásamt námsstyrk ef þú býrð í leigu- eða búseturéttaríbúð og hefur rétt á finnskum námsstyrk. Húsnæðisbæturnar eru aðeins greiddar fyrir þá mánuði sem nám er stundað. Húsnæðisbætur er hægt að fá fyrir nám sem lokið er í Finnlandi eða öðru landi. Nánari upplýsingar á vefsvæði Kela.

Átt þú rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi?

Þú getur fengið fjárhagsaðstoð vegna náms að loknum grunnskóla í Finnlandi. Einnig er hægt að veita fullorðnum fjárhagsaðstoð til að ljúka grunnskólanámi. Þú getur fengið fjárhagsaðstoð ef þú ert í fullu námi, lýkur tilskildum fjölda eininga á hverri önn og hefur þörf fyrir fjárhagsaðstoð. Ef þú vinnur meðfram námi þarftu að athuga að tekjur þínar hafa áhrif á þann fjölda mánaða sem þú átt rétt á fjárhagsaðstoð. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Skilyrði fyrir veitingu fjárhagsaðstoðar eru mismunandi fyrir nám á háskólastigi og nám á framhaldsskólastigi. Þú getur líka fengið fjárhagsaðstoð vegna náms erlendis ef námið samsvarar þeim námsleiðum sem hægt er að fá fjárhagsaðstoð vegna í Finnlandi, eða ef námið verður metið inn í nám sem þú stundar í Finnlandi. Þú getur líka fengið fjárhagsaðstoð ef þú ert finnskur ríkisborgari með búsetu í öðru landi og stundar nám við finnska menntastofnun. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Nemar sem koma til Finnlands frá öðrum norrænum löndum fá yfirleitt fjárhagsaðstoð vegna náms frá heimalandi sínu. Ef þú ert ekki finnskur ríkisborgari áttu aðeins rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms ef þú hefur fasta búsetu í Finnlandi og dvelur þar af öðrum ástæðum en vegna námsins, til dæmis vegna vinnu, fjölskyldutengsla eða hefur flutt aftur til Finnlands á grundvelli fjölskyldutengsla eða annarra náinna tengsla. Ef þú fékkst inngang í finnska menntastofnun áður en þú skráðir þig í þjóðskrá í Finnlandi, og hefur ekki aðra ástæðu en námið til að dvelja í Finnlandi, þá áttu almennt ekki rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi.

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela. Ef þú getur ekki fengið fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi skaltu kynna þér reglur um slíka aðstoð í þínu heimalandi.

Hvernig er sótt um fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi?

Þú getur sótt um fjárhagsaðstoð vegna náms þegar skólavist þín er staðfest. Sendu inn rafræna umsókn á vefsvæði OmaKela eða prentaðu út og sendu Kela útfyllta umsókn ásamt viðhengjum. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Hversu lengi getur þú fengið fjárhagsaðstoð vegna náms í Finnlandi?

Tímamörk á fjárhagsaðstoð vegna náms eru ekki hin sömu í háskólanámi og framhaldsskólanámi. Ef þú ert í háskólanámi fara tímamörkin eftir því hversu langt námið er og því hvenær þú byrjaðir fyrst í háskólanámi. Hægt er að fá fjárhagsaðstoð til framhaldsskólanáms eins lengi og námið varir, svo lengi sem um fullt nám er að ræða. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Sá fjöldi mánaða sem hægt er að fá fjárhagsaðstoð fyrir fer líka eftir því hvar þú ert í námi. Hægt er að fá fjárhagsaðstoð vegna háskólanáms í 9 mánuði á skólaári og vegna menntaskólanáms í 10 mánuði á skólaári. Þeir mánuðir sem hægt er að fá aðstoð fyrir eru ágúst/september til maí. Þú getur þó sótt um að fá aðstoð til skemmri tíma, eða til lengri tíma ef þú stundar námið líka á sumrin. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Hvenær eru námslán í Finnlandi endurgreidd?

Endurgreiðsla námslána í Finnlandi hefst vanalega um 1,5–2 árum eftir að fjárhagsaðstoð vegna náms er lokið. Hægt er að hefja endurgreiðsluna fyrr ef þess er óskað.

Lántaki semur um fyrirkomulag á endurgreiðslu námsláns við bankann.

Ríkisábyrgð námslána gildir í 30 ár frá upphafi lántöku. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Aðrir styrkir fyrir nema í Finnlandi

Háskólanemar í Finnlandi eiga rétt á máltíðastyrk, ýmiss konar námsmannaafslætti, niðurfellingu á hluta námslána ef námi er lokið á tilskildum tíma og á tekjutengdum lífeyri fyrir gráðu sem lokið er. Framhaldsskólanemar í Finnlandi geta fengið styrk vegna ferða í og úr skóla. Nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan.

Aðrir styrkir fyrir háskólanema í Finnlandi

Háskólanemar fá afslátt af máltíðum í matsölum háskólanna. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Upplýsingar um aðra afslætti sem fást gegn framvísun stúdentakorts og ýmsa styrki sem hægt er að fá til náms finnur þú á síðunni Leiðbeiningar: nám í Finnlandi.

Háskólanemar geta líka fengið hluta námslána niðurfelldan ef þeir ljúka námi á tilskildum tíma. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Að auki safna námsmenn starfstengdum lífeyri fyrir nám sem lýkur með gráðu. Nánari upplýsingar eru á vefsvæðinu Työeläke.fi.

Aðrir styrkir fyrir framhaldsskólanema í Finnlandi

Ef þú ert framhaldsskólanemi getur þú fengið styrk vegna ferðalaga í skólann ef vegalengdin þangað er að minnsta kosti 7 kílómetrar, að því gefnu að þú eigir rétt á að stunda nám án endurgjalds í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Að auki safna nemendur starfstengdum lífeyri fyrir iðnnám á framhaldsskólastigi sem lýkur með gráðu. Nánari upplýsingar eru á vefsvæðinu Työeläke.fi.

Hvað ef þú veikist eða eignast barn?

Ef þú veikist á námstíma getur þú farið í veikindaleyfi. Ef þú gengur með barn eða hefur eignast barn gætir þú átt rétt á foreldrabótum og barnauppbót námsmanna. Nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan.

Veikindaleyfi á námstíma í Finnlandi

Ef þú veikist og getur ekki stundað námið getur þú farið í veikindaleyfi. Þá getur þú fengið sjúkradagpeninga í stað fjárhagsaðstoðar námsmanna. Þú getur ekki þegið fjárhagsaðstoð námsmanna á sama tíma og sjúkradagpeninga og því hætta námsmannagreiðslurnar að berast þegar Kela samþykkir að veita þér sjúkradagpeninga. Sjúkradagpeningar sem greiddir eru vinnuveitanda koma þó ekki í veg fyrir að þú fáir fjárhagsaðstoð vegna náms.

Þegar veikindaleyfi þínu lýkur og þú heldur áfram í fullu námi skaltu gera Kela viðvart um það. Þú þarft að sækja um fjárhagsaðstoð námsmanna upp á nýtt ef greiðslurnar féllu alveg niður meðan á veikindaleyfinu stóð.

Þótt þú þiggir sjúkradagpeninga getur þú samt stundað nám upp að vissu marki. Þegar svo stendur á getur þú stundað nám sem nemur um 40% af venjubundnu fullu námi. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Meðganga og barneignir á námstíma í Finnlandi

Ef þú gengur með barn meðan þú ert í námi getur þú fengið meðgöngustyrk. Meðgöngustyrkur er greiddur fyrir 40 virka daga. Þú getur líka fengið fæðingarstyrk, sem er annað hvort pakki með barnadóti eða 170 evrur í peningum. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Þú getur fengið fæðingarorlofsgreiðslur sem námsmaður ef þú hefur tök á að sinna barninu meðfram námi þínu. Þú getur fengið fjárhagsaðstoð vegna náms og fæðingarorlofsgreiðslur samtímis án þess að fjárhagsaðstoðin hafi áhrif á upphæð fæðingarorlofsgreiðslna. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela og á síðunni Foreldrabætur í Finnlandi.

Hafir þú fengið húsnæðisbætur með námsstyrknum hætta þær greiðslur að berast þegar þú eignast barn. Þá getur þú sótt um almennan húsnæðisstyrk. Ef þú hefur fengið húsnæðisstyrk og eignast barn ættir þú að athuga skilyrði húsnæðisstyrksins. Húsnæðisstyrkur er veittur á grundvelli heimilishalds og því getur styrkupphæð breyst ef heimilisfólki fjölgar.

Þiggir þú námsstyrk getur þú fengið hærri styrk sem forsjáraðili barns undir 18 ára. Lögheimili barns eða fjöldi barna hefur ekki áhrif á þá upphæð. Ekki er hægt að sækja um hækkun námsstyrks vegna forsjár barna. Styrkurinn hækkar sjálfkrafa þegar upplýsingar um forsjá barns berast finnsku þjóðskránni. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Þótt þú þiggir fjárhagsaðstoð vegna náms hefur það ekki áhrif á möguleika þína til að þiggja heimgreiðslur vegna barns, eða styrk vegna dagvistunar hjá einkaaðila.

Nánari upplýsingar um styrki og fjárhagsstuðning vegna meðgöngu og barneigna eru hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar

Hafðu samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.