Rafræn skilríki á Álandseyjum
Rafræn skilríki eru notuð til að auðkenna sig í rafrænni þjónustu, til dæmis hjá FPA og hjá skattyfirvöldum og til að greiða á netinu. Í Finnlandi og á Álandseyjum geta einstaklingar notað bankakóða, ríkisborgaraskírteini eða farsímaskírteini sem rafræn skilríki, og einnig svonefnt e-ID eða rafræna undirskrift. Einu rafrænu skilríkin sem ná yfir landamæri í Finnlandi eru ríkisborgaraskírteinin (eIDAS). Erlendir ríkisborgarar geta skráð sig inn í vissa rafræna þjónustu í Finnlandi með því að nota auðkenningarleið sem er tengd við eIDAS eða með auðkenningarþjónustunni Finnish Authenticator.
Nánari upplýsingar um mismunandi leiðir til auðkenningar, svo sem bankakóða, farsímaskírteini og ríkisborgaraskírteini, auðkenningu erlendis og rafræn skilríki erlendra ríkisborgara er að finna á síðunni „Rafræn auðkenning í Finnlandi“.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um rafræn skilríki í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.