Föngun og geymsla kolefnis – tækifæri fyrir Evrópu á Norðurlöndum
Sem stendur eru Norðurlönd í fararbroddi í þróun á sviði kolefnisföngunar og -geymslu í Evrópu, eins og m.a. má sjá á ýmsum landsbundnum verkefnum, þar á meðal leyfum til könnunar og geymslu á koldíoxíði, styrkjakerfum fyrir kolefnisföngun og -geymslu og nettóneikvæðri föngunar- og geymslustöð.
Stórfelld innleiðing á tækni til föngunar og geymslu kolefnis krefst þó samhæfðra aðgerða, þekkingarmiðlunar og traustra innviða. Norræna áætlunin um föngun og geymslu kolefnis styður við föngun og geymslu kolefnis á svæðinu og þróar samnorræna sérþekkingu á vandamálum á þessu sviði sem nýtast við stefnumótun.
Tilgangur áætlunarinnar er að skapa traustan greiningargrundvöll sem gerir frekari þróun á þessu sviði mögulega á Norðurlöndum en skapar einnig grundvöll fyrir framtíðarverkefni á sviði föngunar og nýtingar kolefnis sem skiptir sköpum þegar kemur að því að skipta út vörum sem unnin er úr jarðefnum fyrir sjálfbæra valkosti.
Áherslusvið
- Þróa norræna færni og sameiginlega þekkingu á kolefnisföngun og -geymslu.
- Styðja þróun samkeppnishæfra og hagkvæmra innviða fyrir flutning koldíoxíðs þvert á landamæri.
- Greina geymslumöguleika koldíoxíðs á Norðurlöndum og fyrirkomulag fjármögnunar.
- Kanna umhverfisöryggi, samfélagslegan stuðning og möguleika á kolefnisföngun á iðnaðarskala.
- Meta kostnað og tækifæri tæknilausna þegar kemur að því að fanga koldíoxíð beint úr andrúmsloftinu.
- Veita stuðning við stefnumótun og leggja sitt af mörkum til reglugerðarramma ESB í framtíðinni.
Þessum áherslusviðum er ætlað að styrkja stöðu Norðurlanda sem evrópskrar miðstöðvar á sviði kolefnisstjórnunar og stuðla að því að bæði landsbundin markmið og Evrópumarkmið í loftslagsmálum náist. Áætlunin er jafnframt grunnur að upplýstri stefnumörkun með samnorrænni innsýn og sérþekkingu.