Konungleg þátttaka á viðburði Norrænu ráðherranefndarinnar á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

02.06.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Kronprins Haakon 2023. Foto: Dusan Reljin / Det kongelige hoff, H.K.H. Kronprinsessan 2022 Fotograf: Linda Broström/Kungl. Hovstaterna
Bæði Hákon krónprins Noregs og Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar taka þátt í viðburði Norrænu ráðherranefndarinnar um svæðisbundið samstarf um sjálfbæra stjórnun hafsvæða á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nice þann 9. júní. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við MARHAB – The Marine Habitats Project, sem er verkefni sem fjármagnað er af ESB. Þetta er í fyrsta sinn sem Norræna ráðherranefndin tekur þátt í ráðstefnunni.

Hákon krónprins hefur sérstaklega látið sig varða málefni sem tengjast mannlegri reisn og umburðarlyndi, sjálfbærri þróun og frumkvöðlastarfsemi. Hann er jafnframt velgjörðarsendiherra þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, UNDP.

Áhersla Viktoríu krónprinsessu á umhverfis- og loftslagsmál varð til þess að á árunum 2016-2019 var hún ein af 17 sendiherrum vinnunnar að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Krónprinsessan er nú sérstakur sendiherra heimsmarkmiðanna og leggur eftir sem áður sérstaklega mikið upp úr sjálfbærni og málefnum hafsins og fiskveiða. Frá árinu 2023 hefur krónprinsessan jafnframt verið velgjörðarsendiherra þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, UNDP.

Norræna ráðherranefndin vinnur ötullega að málefnum hafsins, bæði á sjávarútvegs- og umhverfissviði, og á viðburðinum verður sérstaklega vakin athygli á SAMSKAG-verkefninu á Skagerrak-svæðinu sem dæmi um það hvernig víðtækt og þverfaglegt samstarf um málefni hafsins getur verið, jafnt á Norðurlöndum sem annars staðar í heiminum. Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, tekur einnig þátt í viðburðinum.