Ráðherrar einhuga: Auka verður norrænt samstarf á sviði netverslunar

08.05.25 | Fréttir
mr-mk 2025
Ljósmyndari
Maijastina Tuominen

Norrænu loftslags- og umhverfisráðherrarnir komu saman til fyrsta fundar ársins undir formennsku Finnlands og Álandseyja. Fundurinn var haldinn í finnsku náttúrumiðstöðinni Haltia.

Sá vöxtur sem orðið hefur á netverslun á undanförnum árum hefur skapað áskoranir fyrir neytendur, atvinnulífið og umhverfið. Norrænu loftslags- og umhverfisráðherrarnir eru á einu máli um að staðan sé ekki sjálfbær og að setja skuli málið í forgang.

Ný skýrsla frá Norrænu ráðherranefndinni sýnir að 71 prósent þeirra vara sem seldar eru í gegnum vefi á borð við Temu og Shein uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru varðandi umhverfisvernd, hollustuhætti eða öryggi. Það þýðir að mikil hætta er á því að vörur sem keyptar eru utan ESB eða EES og sendar eru beint til norrænna neytenda geti innihaldið ólögleg efni sem eru skaðleg bæði heilsu og umhverfi.

Hinum gríðarlega hraða vexti í netverslun fylgja nýjar áskoranir. Það er eindregin og sameiginleg skoðun norrænu landanna að aðgerða sé þörf til að takast á við vandann sem fylgir netverslun og að við finnum bestu leiðirnar til þess í sameiningu.

Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands

Málið var tekið fyrir á fyrsta fundi norrænu umhverfis- og loftslagsráðherranna og skilaboð ráðherranna voru skýr: Um alvarlega áskorun er að ræða sem ber að setja í forgang. Því samþykktu ráðherrarnir að fela Norrænu ráðherranefndinni umboð til þess að vinna að aðgerðum til að takast á við sölu á vörum sem skaðlegar eru umhverfinu og heilsu í netverslunum. Fyrst í stað verður það gert innan efnavöruáætlunar loftslagssviðs og áætlunar um hringrásarhagkerfi.

„Hinum gríðarlega hraða vexti í netverslun fylgja nýjar áskoranir. Það er eindregin og sameiginleg skoðun norrænu landanna að aðgerða sé þörf til að takast á við vandann sem fylgir netverslun og að við finnum bestu leiðirnar til þess í sameiningu. Það er mikilvægt að við leysum vandamál í samvinnu við norræna kollega okkar á tímum örra breytinga sem kalla á nýjar aðferðir,“ segir Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands.

„Við viljum að vörur sem keyptar eru á netinu séu traustar, öruggar og lausar við skaðleg efni. Norrænu löndin hafa góðar forsendur til þess að tala skýrri röddu fyrir öruggri og sjálfbærri netverslun á vettvangi evrópsks samstarfs,“ segir Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs.

„Það er ekki í bara í Danmörku sem við sjáum alls kyns hættuleg efni í vörum frá ódýrum erlendum vefsvæðum á borð við Temu, Wish og Shein. Um útbreiddan vanda er að ræða þar sem neytendur hafa ekki hugmynd um hvaða efni vörurnar innihalda. Þess vegna þurfa norrænu löndin að vinna saman að því að knýja netverslanir til að taka aukna ábyrgð á þeim vörum sem þær selja,“ segir Magnus Heunicke, umhverfisráðherra Danmerkur.

Vaxandi vandamál

Það er víðar en á Norðurlöndum sem fólk kýs að versla á netinu. Þessi þróun á sér einnig stað á meðal nágranna okkar í Evrópu og það eru einkum viðskipti með ódýrar vörur frá löndum utan Evrópu sem skýra vöxtinn í netverslun sem hefur meira en þrefaldast frá árinu 2022. Tölur frá framkvæmdastjórn ESB sýna að einungis á árinu 2024 voru fluttar inn 4,6 milljarðar ódýrra vara til Evrópu. Það samsvarar 12 milljónum sendinga á dag.

Norrænu löndin hafa góðar forsendur til þess að tala skýrri röddu fyrir öruggri og sjálfbærri netverslun á vettvangi evrópsks samstarfs.

Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs

Það var norrænn starfshópur um efnavörur (NKE) sem óskaði eftir skýrslunni og sænska efnavörueftirlitið (KEMI) sem vann hana í samstarfi við öryggis- og efnavörueftirlit Finnlands, Danmerkur og Noregs.

Fundur ráðherranna var haldinn í náttúrumiðstöðinni Haltia í Finnlandi tengslum við formennsku Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni.