Hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til norræns samstarfs á sviði umhverfis- og loftslagsmála
Á starfstímabilinu 2025–2027 eru 16 áætlanir í gangi á vegum umhverfis- og loftslagssviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Í gegnum þessar áætlanir er haldið áfram með mikilvægar aðgerðir sem styðja við norrænu framtíðarsýnina um að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims 2030. Jafnframt er nýjum aðgerðum ýtt úr vör til að mæta áskorunum og tækifærum á sérsviðum fagsviðsins.
Margar af áætlununum bjóða upp á úthlutanir og útboð sem eru opin fyrir:
- Stofnanir á sveitarstjórnar-, svæðis- eða landsstigi.
- Háskóla
- Rannsóknarstofnanir og önnur frjáls félagasamtök.
- Fyrirtæki geta ekki verið aðalumsækjendur eða þiggjendur fjárveitinga. Þau geta þó verið aðilar að verkefnum eða unnið að verkefnum fyrir hönd eigenda verkefnanna.