EXPO 2025 skilar sér í nýju norrænu verslunarráði í Japan

15.10.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Mikael Kelk/norden.org
Fimm norræn verslunarráð í Japan, frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, eru stolt af því að get kynnt stofnun á Nordic Kansai Business Alliance (NKBA). Þetta nýja framtak miðar að því að efla samstarf og skapa sjálfbæran vöxt fyrir fyrirtæki á Norðurlöndum og í Japan, á grundvelli þess skriðþunga sem varð til í norræna skálanum á EXPO 2025 í Osaka.

Sex mánaða viðveru á EXPO 2025 í Osaka með norræna skálanum lýkur nú. Um leið markar það upphaf nýs alþjóðlegs samstarfs fyrir Norðurlönd auk áþreifanlegs árangurs norræns samstarfs um sameiginlegan stuðning við atvinnulífið á EXPO 2025. Þess vegna hefur Norræna ráðherranefndin, sem er aðili að norræna skálanum, hleypt af stokkunum Nordic Kansai Business Alliance:

„Norræni skálinn á EXPO 2025 í Osaka hefur verið frábært dæmi um hið nána samstarf norrænu landanna. Ég er stoltur af því að sjá þróun norræns-japansks samstarfs, ekki síst á sviði atvinnulífs með Nordic Kansai Business Alliance. Þökk sé þessu nýja framtaki geta löndin okkar haldið áfram að vinna saman hér í Kansai, byggt upp norrænt viðskiptasamfélag og hjálpað japönskum fyrirtækjum á svæðinu að finna nýjar samstarfsleiðir á Norðurlöndum,“ segir Anders Adlercreutz, menntamála- og samstarfsráðherra Norðurlanda í Finnlandi.

 

„Hlutverk Norrænu ráðherranefndarinnar er að tryggja norrænum fyrirtækjum sem best skilyrði til að rækta og þróa samstarf við alþjóðlega samstarfsaðila á heimsvísu. Norræni skálinn á EXPO 2025, sem hefur leitt til stofnunar nýs verslunarráðs, er sönnun þess hverju er hægt að áorka með sameiginlegu átaki, stofnun verslunarráðs sem skapar aukið virði í norrænu-japönsku samstarfi hér í Kansai,“ sagði Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Tengsl og traust í kjölfar EXPO 2024

Frá opnun EXPO 2025 í apríl hefur norræni skálinn haldið yfir 200 viðburði fyrir atvinnulífið og tekið á móti meira en 1,6 milljónum gesta. Þessar glæsilegu tölur bera vitni um öflugt samstarf norrænu landanna og Norrænu ráðherranefndarinnar, þar sem hver um sig leggur sitt af mörkum á sameiginlegum vettvangi. Þökk sé þessari starfsemi hafa norræn fyrirtæki og stofnanir útvíkkað tengslanet sitt og byggt upp traust samband við japanska samstarfsaðila á fjölmörgum sviðum.

 

Sérstaklega hafa „norrænu dagarnir“ skilið eftir skýr spor á EXPO 2025. Í orkugeiranum hafa umræður beinst að endurnýjanlegri orku og grænni tækni. Norræna ráðherranefndin hefur jafnframt beint sjónum að m.a. lífvísindum og heilsu, nýsköpunarfyrirtækjum, jafnrétti, matvælum og norðurslóðum. Auk þess hefur sprottið upp samstarf og ný tækifæri til verkefna á sviði lífsstíls, ferðamála, menntunar og víðar, m.a. með þátttöku japanskra fyrirtækja, sveitarfélaga og rannsóknarstofnana.

Tengslin ná lengra en EXPO 2025

Nordic Kansai Business Alliance (NKBA) er sett á laggirnar með það að markmiði að tryggja að tengslanet og traust sem byggðist upp á EXPO 2025 þróist í langtímasamstarf við samfélag og hagsmunaaðila í Kansai. NKBA þjónar sem vettvangur fyrir samstarf sem getur styrkt nærveru Norðurlanda enn frekar á Kansai-svæðinu og á sama tíma opnað dyr fyrir japönsk fyrirtæki sem hafa áhuga á Norðurlöndum.

Nordic Kansai Business Alliance er norrænn samstarfsvettvangur

NKBA er samstarfsvettvangur sem eykur sýnileika norrænu landanna í Kansai með viðburðum sem verslunarráðin skipuleggja sameiginlega og með svæðisbundnu samstarfi um sameiginlegar rekstrarauðlindir. Norrænu verslunarráðin starfa áfram sjálfstætt, en bandalagið stendur fyrir sameiginleg norræn gildi: nýsköpun, sjálfbærni og traust. Nordic Kansai Business Alliance verður jafnframt vettvangur fyrir japönsk fyrirtæki sem hafa áhuga á Norðurlöndum. Verslunarráð Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar eru sjálfstæð, óhagnaðardrifin samtök sem fara með hagsmuni meira en 400 fyrirtækja og fagaðila.