EXPO 2025: Alþjóðlegt samstarf á Norðurskautssvæðinu
„Norræni skálinn sýnir glöggt hverju norrænu löndin geta áorkað í sameiningu. Ég hlakka til dagsins í dag, þar sem áherslan verður á Norðurskautssvæðinu. Og ég vona að Japan og norrænu löndin geti stuðlað að lausnum fyrir Norðurskautssvæðið,“ sagði Viktoría krónprinsessa af Svíþjóð á Norðurlanda- og Norðurskautsdeginum í norræna skálanum á EXPO 2025 í Japan.
Því næst hélt Anders Adlercreutz, menntamála- og samstarfsráðherra Finnlands, setningarræðu fyrir hönd Finnlands sem formennskulands í Norrænu ráðherranefndinni. Ráðherrann lagði strax áherslu á mikilvægi norræns og alþjóðlegs samstarfs á tímum þegar loftslagsmál, tækniþróun og viðbúnaðarmál móta framtíð Norðurskautssvæðisins.
Við megum ekki gleyma því að þótt Norðurskautssvæðið virðist fjarlægt í landfræðilegum skilningi þá er heimurinn samtengdur. Viðbúnaður og sjálfbærar lausnir fyrir Norðurskautssvæðið krefjast samstarfs.
Dagurinn leiddi saman konunglega fulltrúa, ráðherra, hátt setta embættismenn, leiðtoga úr atvinnulífinu og vísindamenn frá Norðurlöndum og Japan. Saman ræddu þeir hvernig samstarf gæti stuðlað að sjálfbærri þróun á Norðurskautssvæðinu og skapað verðmæti bæði fyrir fólk og náttúru.
Á Norðurskautssvæðinu er einnig að finna lausnir
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, lagði í ávarpi sínu áherslu á að Norðurskautssvæðið sé órjúfanlegur hluti af norrænni sjálfsmynd og að samvinna skipti sköpum fyrir svæðið. Jafnframt benti hún á að svæðið standi í dag frammi fyrir miklum úrlausnarefnum í tengslum við loftslagsbreytingar, geópólitíska spennu og álag á náttúruauðlindir. En á svæðinu er einnig til staðar samvinna og nýsköpun sem skilar raunverulegum árangri.
„Í meira en 20 ár hefur Norðurskautssvæðið verið forgangsmál hjá Norrænu ráðherranefndinni. Svæðið leikur lykilhlutverk í norrænni landafræði og sjálfsmyn. Það er ánægjulegt að við hér í norræna skálanum á EXPO 2025 getum ásamt Japan myndað ný og sterk tengsl, norðurslóðum til heilla,“ sagði Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norrænt samstarf um viðnámsþrótt á Norðurskautssvæðinu
Norræna ráðherranefndin styður mörg verkefni sem voru kynnt við þetta tækifæri. Meðal annars má nefna: