Leiðir til að vekja áhuga á þemaþingi Norðurlandaráðs 2024

Angelika Bengtsson gör en videohälsning på Nordiska rådets session 2023 i Oslo

Angelika Bengtsson gör en videohälsning på Nordiska rådets session 2023 i Oslo

Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
Vilt þú taka þátt í að auka áhugann á þemaþinginu í ár? Hér geturðu séð starf samskiptasviðsins á meðan þinginu stendur. Hér finnurðu líka myndir sem þú getur notað án endurgjalds. Þetta getur þú gert:

1. Notaðu vefsíðu þingsins til að fá yfirsýn

Á vefsíðu þingsins er m.a. að finna hagnýtar upplýsingar, fréttir, fundardagskrá og aðra dagskrá þingsins.

2. Myndir frá þinginu

Ljósmyndari frá okkur verður líka á staðnum og mun taka myndir af þinginu. Myndirnar má nota að kostnaðarlausu til notkunar sem ekki er í hagnaðarskyni og muna skal eftir að vísa til ljósmyndarans (NN/norden.org).

Deildu þínum eigin myndum og myndskeiðum frá þinginu á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum ásamt myllumerkinu okkar #nrsession.

3. Notaðu myllumerkin

Taktu þátt í að skapa umræðu um norræn stjórnmál á samfélagsmiðlum með því að nota myllumerkin okkar: #nrsession og #nrpol.

4. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

5. Deildu fréttum af þemaþinginu

Einföld leið til að vekja athygli á þemaþingi Norðurlandaráðs er að dreifa fréttum sem við birtum á norden.org.

6. Horfðu á beinar útsendingar frá þinginu og skrifaðu ummæli

Við sendum beint frá öllum þingfundum: