Lok: Skil á lokaskýrslu um norrænt verkefni
Lokaskýrsla
Lokaskýrslan byggir á yfirskriftum og upplýsingum úr verkefnislýsingu sem fylgdi styrkumsókn þinni. Hún á að innihalda samantekt á árangri verkefnisins og hugsanlegar breytingar og árangri hvers meginmarkmiðs verkefnalýsingarinnar.
Lokaskýrsla gegnum RBM-gáttina
Hér er að finna leiðbeiningar um hvernig fylla skal út og senda lokaskýrslu gegnum RBM-gáttina.
Fyrir verkefni sem samið var um á árinu 2024 eða fyrr:
Lokaskýrslunni er hlaðið upp í verkefnagáttina ásamt fjárhagslegu uppgjöri og hugsanlegum fylgiskjölum.
Skjöl á skandinavísku:
Skjöl á ensku:
Fjárhagsuppgjör
Í fjárhagsuppgjöri er gengið út frá fjárhagsáætlun sem skilað var við upphaf verkefnisins. Fjárhagsuppgjörið skiptist í fjóra flipa sem allir verða að vera útfylltir: reikningshald, skýringar, yfirlit reikningshalds og að lokum undirskriftir ábyrgðaraðila verkefnis og ábyrgðaraðila fjármála.
Öll útgjöld skulu gefin upp í dönskum krónum. Þegar lokið hefur verið við að fylla út og undirrita fjárhagsuppgjörið er því hlaðið upp í verkefnagáttina ásamt lokaskýrslunni.
Skjöl á skandinavísku:
Skjal á ensku
Leiðbeiningar um yfirferð endurskoðanda á notkun verkefnisstyrks
Ef um er að ræða fjárhæð sem nemur 500.001 DKK eða hærri upphæð skal lokauppgjörið endurskoðað af löggiltum endurskoðanda. Þetta á ekki við um ríkisstofnanir sem lúta endurskoðun ríkisendurskoðunar í einhverju landanna. Nánari leiðbeiningar um þetta má finna í gögnunum hér fyrir neðan.
Skjal á skandinavísku:
Skjal á ensku:
Yfirlýsing endurskoðanda um endurskoðun á notkun verkefnisstyrks
Endurskoðandi skal fylla út og skrifa undir yfirlýsingu um fjárhagsuppgjör samkvæmt fyrrnefndum leiðbeiningum. Yfirlýsingin fylgi fjárhagsuppgjörinu þegar við á. Hægt er að nota eftirfarandi sniðmát fyrir yfirlýsinguna.
Skjöl á skandinavísku:
Skjal á ensku:
Skilið lokaskýrslu á verkefnagátt ef verkefnið hlaut styrk árið 2024 eða fyrr
Lokaskýrsluna skal gera gegnum verkefnagáttina. Hlekk, leiðarvísi fyrir feril verkefnis og handbók um verkefnagáttina má nálgast hér: