Menntun, rannsóknir og tungumál – Pólitískar áherslur 2025-2027
Markmið okkar er að tryggja að Norðurlönd í heild hafi styrka stöðu – séu þróttmikið, inngildandi og sjálfbært svæði á sviði menntunar og rannsókna. Á tímabilinu 2025-2027 eru mikilvægustu forgangsmálin gegnum markmið okkar að tryggja menntun af góðum gæðum fyrir alla, þróa hæfni framtíðar í takti við þarfir vinnumarkaðarins, styrkja rannsóknir og varðveita og þróa norrænu tungumálin og norræna málsamfélagið.
Samstarfsáætlunin um menntun, rannsóknir og tungumál (MR-U) er grundvöllur aðgerða og áherslusviða árin 2025-2027. Hér að neðan eru kynnt valin áherslusvið undir hverju markmiði:
Markmið 1: Allir íbúar Norðurlanda skulu hafa aðgang að menntun af góðum gæðum frá ungum aldri og allt til æviloka – óháð bakgrunni
Ljósmyndari
Nikoline Arns, Unsplash
Áherslusvið
- Alþjóðlegar rannsóknir um bættan námsárangur á sviði grunnfærni
- Löngun til að lesa meðal barna og ungmenna í samstarfi við aðila í norræna menningargeiranum
- Ábyrg notkun stafrænnar tækni og skjás í skólum
- Samhengi milli vellíðunar, andlegrar heilsu og stafvæðingar
- Skilningur á lýðræði, mat á heimildum og fjölmiðlalæsi í skólum
- Norrænar rannsóknir um snemmtæka íhlutun, vellíðan og námsumhverfi
Markmið 2: Framtíðarmenntun á Norðurlöndum á að endurspegla hæfniþörf samfélagsins og vinnumarkaðarins
Ljósmyndari
Unsplash
Dæmi um áherslusvið
- Símenntun og eftir- og framhaldsmenntun fyrir svið þar sem vantar vinnuafl, til dæmis velferðargeirann og orkugeirann.
- Varðveisla og framkvæmd í framhaldsskólum
- Hæfniþörf framtíðar
Markmið 3: Norrænar rannsóknir eiga að vera af háum gæðum á alþjóðlega mælikvarða og skapa nýja þekkingu á mikilvægum sviðum
Ljósmyndari
Nordforsk
Dæmi um áherslusvið
- Rannsóknir á norðurskautssvæðum, gervigreind, samfélagsöryggi og innviðir
- Samræming á norrænni fjármögnun rannsókna
- Umgjörð fyrir ungt vísindafólk
- Norræn þátttaka í rannsóknaráætlunum ESB
- Samstarf um rannsóknarinnviði og ábyrg gagnaskipti
Markmið 4: Sem norræn samfélög eigum við að varðveita og þróa öll tungumálin okkar og tungumálasamstöðuna
Ljósmyndari
Johnér
Dæmi um áherslusvið
- Kennsla í norrænum tungumálum og skilningur á grannmálum
- Samstarfsnet og samstarf milli barna og ungmenna þvert á Norðurlönd
- Kynning á norrænum tungumálum
- Hugtakanotkun á öllum fagsviðum
- Máltækni og gervigreind fyrir smá og stór norræn tungumál
Markmið 5: Efla skal Norðurlönd sem samþætt menntunar- og rannsóknarsvæði
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Dæmi um áherslusvið
- Hreyfanleiki á sviði menntunar og rannsókna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum
- Hlutverk og gildi Nordplus fyrir norrænt samstarf
- Samnorræn staða gagnvart ESB og alþjóðlegum aðilum
- Ábyrgt alþjóðlegt samstarf og akademískt tjáningarfrelsi
- Styðja lítil og viðkvæm fagsvið á Norðurlöndum