Norræn áætlun um hringrásarinnkaup

Ljósmyndari
Unsplash
Opinber innkaup eru um 15% af vergri landsframleiðslu á Norðurlöndum og allt að 80% af útgjöldum opinberra aðila. Á undanförnum árum hefur norrænt samstarf nýtt þetta tækifæri til að efla hringrásarinnkaup.

Gott dæmi er fyrsti rammasamningur Noregs um endurnýtingu tæknibúnaðar sem fleiri en 190 aðilar hafa tekið upp. Þessi aðgerð hefur leitt til þess að mörg kíló af gulli, silfri, palladíni og áli hafa safnast, sem sýnir aukinn þátt opinberra innkaupa í því að stuðla að sjálfbærni og auðlindaöryggi, þar á meðal með söfnun mikilvægra hráefna.

Norræna áætlunin um hringrásarinnkaup hefur það markmið að útvíkka og samræma þessar aðgerðir og þau kerfi sem fyrir eru til að færa saman sveitarfélög og miðlægar ríkiskaupamiðstöðvar. Um leið beinir áætlunin sjónum norræns samstarfs um hringarásarinnkaup að þeim sviðum þar sem möguleikar á hringarásaráhrifum eru mestir, til dæmis hringrásarhagkerfi í upplýsingatækni og kolefnishlutleysi flutninga. Áætlunin tekst einnig á við hindranir vegna hegðunar.

Áherslusvið

- Minnka umhverfis- og kolefnisfótspor með því að gera og prufukeyra innkaup sem stuðla að minnkaðri losun.

- Auka traustleika með óháðari alþjóðlegum aðfangakeðjum, þar á meðal með endurnotkun og söfnun tæknibúnaðar sem inniheldur mikilvæg hráefni.

- Greiða fyrir stafrænni tækni fyrir hringrásarinnkaup, þar á meðal gervigreind sem greinir útboðsskjöl til að þau samræmist viðmiðum um hringrásarhagkerfi.

- Stuðla að nýsköpun og greina viðskiptatækifæri fyrir hringrásarhagkerfið sem hægt er að skala.

Norræna áætlunin um hringrásarinnkaup styður við reglugerð ESB um visthönnun með því að skapa skýra eftirspurn eftir notuðum og endurnýjuðum vörum og fjarlægja hindranir fyrir innleiðingu og skölun.