Norræn áætlun um sjálfbæra neyslu
Það hve erfitt er fyrir hringrásarlausnir að ná fótfestu eða auka umfang þeirra er veruleg áskorun. Auk þess flæða nýjar vörur inn á markaðinn vegna síaukinnar netverslunar, en margar þessara vara endast stutt og samræmast reglugerðum ESB aðeins að litlu leyti. Þessar ódýru vörur grafa oft undan sjálfbærnimarkmiðum Norðurlandabúa.
Norræna áætlunin um sjálfbæra neyslu brúar þetta bil með því að samræma sjálfbærnigildi svæðisins við raunverulega hegðun neytenda. Áætlunin miðar að því að fræða neytendur, styðja við sjálfbær viðskiptalíkön og tryggja reglufylgni.
Áherslusvið
- Sjálfbær neyslumynstur: Að leiða neytendur í átt að sjálfbærari neyslumynstrum sem byggjast á nægjusemi og endingu og draga úr kaupum á vörum sem ekki uppfylla reglur og innihalda skaðleg efni.
- Löggæsla, eftirlit og samstarf: Að efla löggæslu, samstarf og upplýsingamiðlun yfirvalda í viðbrögðum þeirra við innflutningi vara sem ekki samræmast ESB-reglum.
- Viðskiptalíkön sem skapa langa endingu og aðrar hringrásarlausnir: Að styðja viðskiptalíkön sem skapa langa endingu (með viðgerðum, uppfærslum, leigu o.s.frv.) og aðrar hringrásarlausnir og auka notkun þeirra meðal neytenda.
Vegna þess hve hröð neyslumynstur eru verður byrjað á kortlagningu á núverandi hegðun neytenda, netverslunarumhverfi og sjálfbærum viðskiptalíkönum. Ákveðið verður hvaða aðgerðir henta best byggt á þeirri greiningu.