Norræn náttúruætlun

Ljósmyndari
Unsplash
Norræn vistkerfi standa frammi fyrir bæði staðbundnum og alþjóðlegum áskorunum í tengslum við tap líffræðilegrar fjölbreytni, loftlagsbreytingar og mengun – sem í sameiningu nefnast hin þríþætta umhverfiskreppa. Til að bregðast við þessum áskorunum er þörf á umbreytingum sem samþætta náttúrusjónarmið inn í ákvarðanatökuferli og raunverulegar lausnir.

Norræna náttúruáætlunin bregst við þessum þverlægu vandamálum með því að þróa úrræði til að stöðva tap líffræðilegrar fjölbreytni og hjálpa norrænu löndunum að bregðast við samfélagslegum vandamálum með náttúrumiðuðum lausnum. Áætlunin hjálpar norrænu löndunum enn fremur við að innleiða alþjóðlega Kunming-Montreal-rammasamninginn um líffræðilega fjölbreytni og fylgja ráðleggingum nefndar Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og vistkerfaþjónustu (IPBES).

Norræna náttúruáætlunin samanstendur af tveimur undiráætlunum um líffræðilega fjölbreytni og náttúrumiðaðar lausnir. Liðir í þessum markvissu undiráætlunum stuðla að því að þessari þróun verði snúið við og hjálpa til við að leysa samfélagslegar áskoranir með því að bæta samstarf milli yfirvalda, aðila atvinnulífsins og iðnaðarins, borgaralegs samfélags og fræðasamfélagsins.

Áherslusvið

- Styðja við metnaðarfulla innleiðingu Kunming-Montreal-rammasamningsins um líffræðilega fjölbreytni á Norðurlöndum.

- Auka samstarf um sjálfbæra landnotkun, vistkerfisnálgun í byggðaþróun og samstarf við atvinnugreinar, borgaralegt samfélag og fræðasamfélag.

- Auka umfang náttúrumiðaðra lausna til að bregðast við áskorunum sem stafa af tapi líffræðilegrar fjölbreytni, loftlagsbreytingum og mengun.

- Auka samtarf milli atvinnugreina, borgaralegs samfélags og fræðasamfélags sem og á milli sviða til að stuðla að samþættari nálgun gagnvart líffræðilegri fjölbreytni við ákvarðanatöku.

- Efla samstarf milli sveitarfélaga og nærsamfélaga alls staðar á Norðurlöndum.

Markmiðið með Norrænu náttúruáætluninni er að tryggja að bæði staðbundnir og svæðisbundnir aðilar og geirar taki virkan þátt í að þróa og innleiða stefnuáætlanir, sem og að auka umfang beinna lausna sem styðja náttúruna og sjálfbæra þróun þróttmeiri vistkerfa og samfélaga.