Náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndum: Svona er tekist á við loftslagsáskoranir í Stafangri

04.07.25 | Fréttir
Stavanger hamn
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Hækkun á yfirborði sjávar veldur erfiðleikum í Stafangri en náttúrumiðaðar lausnir eru ein leið til að takast á við breytingarnar.

Eftir því sem áhrif loftslagsbreytinga verða áþreifanlegri eykst þörfin á sjálfbærum og langvarandi lausnum. Í heimsókn sinni til Stafangurs dagana 23.–25 júní fékk norræna sjálfbærninefndin að sjá hvernig sveitarfélagið nýtir náttúrumiðaðar lausnir sem efla loftslagsviðbúnað ásamt því að grænka bæjarumhverfið og gera það meira lifandi.

Loftslagsbreytinga gætir nú þegar greinilega í Stafangri á suðvesturströnd Noregs, meðal annars í formi aukinnar úrkomu, tíðari flóða og aurskriðna. Árið 2100 er gert ráð fyrir að yfirborð sjávar muni hafa hækkað um 85 sentímetra en því fylgja miklar áskoranir. Aðlögunar og nýsköpunar er þörf til að mæta þessum áskorunum.

Kraftur náttúrunnar sem loftslagsvörn

Á undanförnum árum hefur Stafangur verið í fararbroddi í grænni borgarþróun. Með  náttúrumiðuðum lausnum  tekst sveitarfélagið á við loftslagsáskoranir með aðstoð náttúrulegra ferla og um leið verður til sjálfbærara og vistlegra bæjarumhverfi.

Dæmi um þetta er að skipta hörðu yfirborði á borð við malbik út fyrir yfirborð sem sogar betur í sig regnvatn þegar það fellur. Það dregur úr hættu á flóðum. Önnur dæmi eru að endurheimta votlendi í bæjarumhverfinu eða leggja græn þök sem bæði dempa og soga í sig regnvatn. Einn af kostum náttúrumiðaðra lausna er að oft fylgir þeim margvíslegur ávinningur. Þær eru ekki aðeins loftslagsvænar heldur stuðla þær einnig að líffræðilegri fjölbreytni, grænna borgarumhverfi og aukinni vellíðan.

Í Stafangri er unnið út frá svokallaðri 3-30-300-reglu sem felur í sér að allir í búar eigi að geta séð að minnsta kosti þrjú tré frá heimili sínu, búa á svæði þar sem trjágróður þekur að minnsta kosti 30 prósent og að ekki séu meira en 300 metrar að næsta græna svæði.

Rannsóknir sýna að náttúrumiðaðar lausnir geti dregið úr losun koldíoxíðs á heimsvísu um næstum því þriðjung en það skiptir sköpun til þess að við náum að uppfylla markmið Parísarsamningsins. Um leið hægja þær á hningnun líffræðilegrar fjölbreytni.

Sjálfbærninefndin hittist í Stafangri

Í heimsókn sinni til Stafangurs fræddist nefndin meðal annars líka um samgöngur framtíðarinnar og loftslagsfjárfestingar þar sem áherslan er á að þróa sjálfbærar og árangursríkar lausnir. Umræðurnar snerust um það hvernig nýsköpun og samvinna geta nýst í baráttu við loftslagsáskoranir á sama tíma og viðnámsþróttur samfélagsins er aukinn.

Um Stafangur

Stafangur er á suðvesturströnd Noregs og er fjórða stærsta borg landsins. Hann er þekktur sem olíuhöfuðborg Noregs og á sér langa og mikla sögu þar sem siglingar og iðnaður leika stórt hlutverk. Í ár fagnar Stafangur 900 ára afmæli.

 

Um norrænu sjálfbærninefndina

Norræna sjálfbærninefndin er ein af fjórum fagnefndum Norðurlandaráðs. Nefndin vinnur með málefni sem varða loftslagið, umhverfið, náttúruauðlindir, orkumál og sjálfbæra þróun. Nefndin vinnur að sameiginlegum norrænum lausnum sem styðja við græn umskipti.