Norræna áætlunin um loftslag og loftgæði
Norrænt samstarf hefur um árabil lagt til öflugan þekkingargrunn til að styðja ákvarðanatöku sem gerir Norðurlöndin leiðandi á sviði loftslagsmála og loftgæða. Fyrsti alþjóðasáttmálinn þar sem tekið var á loftmengun átti til dæmis rætur í norrænum rannsóknum og milliríkjasamskipta.
Norræna áætlunin um loftslag og loftgæði byggir á þessu, greiðir fyrir áframhaldandi samstarfi og eykur þekkingu sem mildar skaðleg áhrif loftlagsbreytinga og loftmengunar. Hún greiðir götu landsbundinna verkefna um loftslag og loftgæði og styður við umskipti í átt að kolefnishlutleysi, í samræmi við Parísarsamkomulagið og loftgæðasamning UNECE.
Áherslusvið
- Styður norræn markmið um loftgæði og loftslagsbreytingar og eflingu þróunar alþjóðlegra aðgerða á þessum sviðum.
- Stuðlar að grænum umskiptum í atvinnugreinum þar sem losun er mikil.
- Styrkir norræna seiglu í umhverfis- og loftslagsmálum sem lið í stærra markmiði um að auka seiglu samfélaganna.
- Í áætluninni er stefnt að því að gera öllum aðilum samfélagsins kleift að leggja sitt af mörkum og eiga þess kost á að taka þátt í umskiptum í samræmi við meginregluna um að enginn skuli skilinn eftir.