Upplýsingar fyrir fjölmiðla um þemaþing Norðurlandaráðs í Helsinki 2025

Hér er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir fjölmiðla um þemaþing Norðurlandaráðs í Helsinki 2025. Þemaþingið verður haldið í litla þinghúsinu í Helsinki. Fjölmiðlum gefst kostur á að fylgjast með þingfundi á þriðjudeginum.

Skráning blaðamanna

Fréttamenn sem vilja fylgjast með þemaþinginu á staðnum verða að vera skráðir á þingið.Gilds blaðamannaskírteinis er krafist vegna skráningar.

Aðeins ljósmyndarar með leyfi mega hreyfa sig um þingsalinn. Aðrir fjölmiðlamenn fá úthlutað sæti.

Skráning

Skráning fer fram í E-húsinu, Mannerheimvägen 30, mánudaginn 31. mars og F-húsinu, Arkadiagatan 3, þriðjudaginn 1. apríl. Við skráningu færðu aðgangskort sem gerir þér kleift að fylgjast með þingfundi og fara um í litla þinghúsinu þar sem þingið er haldið.

Framvísa þarf gildu blaðamannaskírteini auk skilríkja með mynd við skráningu.

Beinar útsendingar

Umræðum í þingsal verður streymt.

Fjölmiðlar geta fylgst með beinum útsendingum á skandinavísku, íslensku, finnsku eða ensku á norden.org eða á skjá í sérstöku herbergi í sama húsi sem eingöngu er ætlað starfsfólki og fjölmiðlum. Tengill á beinar útsendingar verður birtur.

Fjölmiðlafulltrúi

Ef þú vilt mæla þér mót við forseta Norðurlandaráðs eða annan þingmann Norðurlandaráðs, eða hefur aðrar spurningar, geturðu haft samband við:

Jakob Colville-Ebeling, samskiptaráðgjafa

+45 61 65 61 95

jacoeb@norden.org