COP 21 – og hvað svo?

09.03.16 | Fréttir
Nordic Pavilion COP21
Í nýjustu útgáfu veftímaritsins „Green Growth the Nordic Way“ er fjallað um fjármögnun loftslagsaðgerða og þinglegt starf í kjölfar loftslagsráðstefnunnar COP21. Hvaða hlutverki hafa kjörnir þingfulltrúar að gegna í tengslum við að tryggja að gripið verði til loftslagsaðgerða og við að efla fjármögnun grænna fjárfestinga? Nánari upplýsingar má nálgast á www.nordicway.org.

Starfsemi tengd norræna sýningarskálanum á COP21 tókst ákaflega vel. Þar kom saman forystufólk, sérfræðingar, frjáls félagasamtök og þátttakendur í loftslagsviðræðum hvaðanæva úr heiminum. Meira en tvö þúsund manns sóttu viðburði á okkar vegum og meira en sex þúsund manns fylgdust með þeim í beinni vefútsendingu. Ráðherrar frá Norðurlöndum gegndu lykilhlutverki í því að koma í gegn lokasamkomulaginu í París og samningateymi þeirra vann af kappi að því að binda endahnút á viðræðurnar.

Nú er áherslan lögð á eftirfylgnina. Hvernig er hægt að gera þetta góða samkomulag að raunveruleika og tryggja að markmiðin náist? Í nýjustu útgáfu „Green Growth the Nordic Way“ er fjallað um tvo þætti þessa verkefnis, það er að segja fjármögnun loftslagsaðgerða og hvernig þingin koma að málinu og þrýsta á ríkisstjórnir að skila þeim árangri sem lofað hefur verið. Nálgast má nýju útgáfuna á www.nordicway.org

Hvað fjármögnun varðar var ákveðið þegar á COP15 í Kaupmannahöfn að frá og með árinu 2020 yrði árlega aflað hundrað milljarða dala til að hjálpa þróunarlöndum að draga úr kolefnislosun. Þetta loforð var ítrekað í Parísarsamkomulaginu, en það dugar varla til að mæta eftirspurninni. Við skoðum nánar það starf sem meðal annars SEB-bankinn og Norræni fjárfestingarbankinn hafa unnið til eflingar grænna skuldabréfa og aðferða til að auka loftslagsfjárfestingar.

Margir af hliðarviðburðunum í norræna COP21-sýningarskálanum fjölluðu um hlutverk þingmanna í eftirfylgni Parísarsamkomulagsins. Við spyrjum suma af þátttakendunum af hverju þetta verkefni sé svo mikilvægt og hvað þeir telji vera sitt meginhlutverk. Þegar er farið að skipuleggja eftirfylgni Norðurlanda í kjölfar COP21, þannig að rétt er að fylgjast áfram með og njóta þess að lesa þessa útgáfu „Green Growth the Nordic Way“.

Nánari upplýsingar um norræna sýningarskálann á COP21 er að finna á slóðinni www.norden.org/cop21. Sjá einnig myndskeiðið Nýjar norrænar loftslagslausnir á COP21