Ný skýrsla sýnir fram á veikleika í norrænu orkuöryggi

08.06.26 | Fréttir
Ljósmyndari
iStock/vovashevchuk
Norræna orkukerfið stendur frammi fyrir auknum öryggisáskorunum og þarf á aukinni mótstöðu að halda gagnvart netárásum, skemmdarverkum og röskunum á mikilvægum innviðum. Þetta sýnir ný greining Economic Security Forum sem gerð var að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og Norrænna orkurannsókna.

Í skýrslunni „Energy Security in the Nordics“ eru kynntar 25 ráðleggingar um hvernig Norðurlönd geta í sameiningu aukið orkuöryggi. Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, segir forsendur Norðurlandanna til að takast á við þessar áskoranir vera góðar, en að taka þurfi skref fram á við. 

Norðurlönd búa þegar yfir traustum orkukerfum og mikilli reynslu af samstarfi byggðu á trausti. Nú þurfum við að taka næstu skref til að efla sameiginlegt orkuöryggi okkar. Aukið samstarf í orkumálum eflir bæði viðnámsþrótt okkar og hin grænu umskipti.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Þörf á auknu öryggi og samhæfingu

Greiningin undirstrikar sérstaklega nauðsyn þess að verja mikilvæga orkuinnviði og tryggja aðgang að mikilvægum íhlutum í orkukerfinu. Ráðleggingarnar fela meðal annars í sér að Norðurlönd ættu að:

  • móta sameiginlega stefnu um orkuöryggi
  • bæta samhæfingu í tengslum við stóra nýja rafmagnsnotendur og
  • bæta viðbúnað með bættri birgðastöðu mikilvægra íhluta.

Norrænu löndin hafa í marga áratugi byggt upp traustar stofnanir og víðtækt samstarf yfir landamæri. Áskorunin í dag er að nýjar ógnir krefjast samstarfs sem er ekki aðeins pólitískt og stefnumótandi heldur einnig á aðgerðasviði.

Mikael Wigell, framkvæmdastjóri Economic Security Forum

Stóraukin orkuþörf

Áætlað er að rafmagnsnotkun muni aukast verulega á Norðurlöndum á næstu árum í takt við umskipti iðnaðarins og tilkomu nýrrar orkufrekrar starfsemi. Undirstrikað er að áframhaldandi uppbygging endurnýjanlegar orkuframleiðslu án jarðefnaeldsneytis er lykilatriði fyrir viðnámsþrótt svæðisins til langs tíma.

Skýrslan var gerð að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og stofnun hennar, Norrænna orkurannsókna, sem einnig fjármagna samnorrænar orkurannsóknir og samstarf í orkumálum. 

Norrænu löndin eru afar samtengt og háð orkuhverfum hvers annars. Þess vegna þurfum við einnig að verða betri í að bregðast sameiginlega við ógnum og áföllum.“

Klaus Skytte, framkvæmdastjóri Norrænna orkurannsókna