Joachim Trier, Eskil Vogt og Thomas Robsahm hlutu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir „Louder Than Bombs“
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
Norski kvikmyndaleikstjórinn og handritshöfundurinn Joachim Trier, handritshöfundurinn Eskil Vogt og framleiðandinn Thomas Robsahm hlutu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina „Louder Than Bombs“ á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.
Handhafi verðlaunanna frá því í fyrra, Dagur Kári, afhenti þeim verðlaunin og verðlaunaféð, 350 þúsund danskar krónur, í tónleikahúsi danska ríkisútvarpsins (DR).
Rökstuðningur
Louder Than Bombs er beitt, hugvitsamleg og framsýn kvikmynd um fjölskyldu sem tekur að leysast upp í kjölfar andláts móðurinnar og eiginkonunnar.
Joachim Trier hefur unnið listrænt afrek ásamt teymi sínu þar sem frásagnarlistin nær nýjum hæðum. Flókin uppbygging kvikmyndarinnar, tilfinningaleg dýpt og hæfileiki til að tæta í sundur klisjur ætti að tryggja henni sess á námskrá kvikmyndaskóla um allan heim.