Traust vernd hugverkaréttar á Norðurlöndum
Þátttakendur í umræðunum voru Tomas Eriksson, SHL, Marcus Pettersson, Skatteverket, Lubna Jaffery, menningar- og jafnréttisráðherra Noregs, Nima Sanandaji, ECEPR, Sara Lindbäck, Rättighetsalliansen, Synnøve Hørsdal, Maipo Film og Nicky Valbjørn Trebbien, Koda
Rætt var sérstaklega um hugverkarétt á hliðarviðburði sem haldinn var í tengslum við nefndarfundinn. Málefnið var áður tekið upp eftir fimm skriflegar fyrirspurnir nefndarfulltrúans Lars Mejern Larsson til ríkisstjórnanna á Norðurlöndum.
Á viðburðinum sem haldinn var í samstarfi nefndarinnar og Rättighetsalliansen, sænskra faggreinasamtaka sem vinna gegn glæpum á netinu, var skýrslan Intellectual Property, Jobs & Prosperity in the Nordic Region 2026 Index kynnt.
Skýrslan lýsir mikilvægi hugverkaréttar fyrir nýsköpun, vöxt og samkeppnishæfni á Norðurlöndum. Hún sýnir að brot gegn hugverkarétti leiða til fjárhagslegs taps og aukins óöryggis, sérstaklega meðal lítilla og vaxandi fyrirtækja. Hún undirstrikar einnig að ólögmæt skráaskipti og eftirlíkingar geta hamlað bæði frumkvöðlastarfi og efnahagsþróun á svæðinu til langs tíma.
Nima Sanandaji, framkvæmdastjóri ECEPR og höfundur skýrslunnar, hefur rannsakað hugverkarétt í 10 ár og heldur því fram að skýr þörf sé á umbótum á þessu sviði og að verja þurfi meiri fjármunum í að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi sem byggir á hugverkaréttabrotum.
Eins og við heyrðum í dag eru miklir hagsmunir í húfi og það er skýrt réttlætismál að handhafar höfundarréttar njóti ekki einungis verndar samkvæmt lögum heldur sé það tryggt að brot gegn höfundarréttarvörðu efni hafi afleiðingar, um leið og við sýnum með skýrum hætti að við stöndum með handhöfum höfundarréttar.
Umræðurnar sem fóru fram í dag eru vonandi ekki endapunkturinn heldur aðeins upphafið að áframhaldandi viðræðum og auknu norrænu samstarfi um þetta mikilvæga málefni
Eftir kynninguna fóru fram pallborðsumræður með Lubna Jaffery, menningar- og jafnréttisráðherra Noregs, og fulltrúum norrænna skattyfirvalda og samtaka á sviði íþrótta, kvikmynda og tónlistar. Vakið var máls á ýmsum áskorunum, meðal annars ólöglegu IPTV-sjónvarpi, tengingum milli skipulagðrar brotastarfsemi og íþrótta og hinnar hröðu þróunar gervigreindar.
Breið samstaða var um að traust vernd hugverkaréttar og aukið norrænt samstarf séu afgerandi til að standast þessar áskoranir, um leið og efla þarf nýsköpun og vöxt á svæðinu.