Kimmo Sasi, formaður Stjórnsýsluhindranaráðsins, er látinn.
Kimmo Sasi átti að baki langan feril í norrænu samstarfi. Hann tók sæti í Norðurlandaráði árið 1987 og sinnti allt til loka ýmsum verkefnum innan bæði Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Árið 2012 gegndi hann embætti forseta Norðurlandaráðs.
Hann átti sæti í Stjórnsýsluhindranaráðinu frá árinu 2018 og tók við formennsku þess í ár samhliða því að Finnland og Álandseyjar tóku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Stjórnsýsluhindranaráðið er óháð nefnd sem stjórnvöld norrænu landanna hafa falið að vinna að því að greiða fyrir frjálsri för og viðskiptum á milli landanna.
Kimmo Sasi átti langan feril í finnskum stjórnmálum. Hann var kosinn á þing árið 1983 og gegndi þingmennsku til ársins 2015. Þá gegndi hann tvisvar sinnum ráðherraembætti en hann var ráðherra erlendra viðskipta og ráðherra samgöngu- og fjarskiptamála á árunum 1999–2003.
Hann var meðlimur finnska Einingarflokksins.