Lýðheilsa er mælikvarði á sjálfbæra þróun
Rannsóknir sem gerðar hafa verið síðustu tvo áratugi sýna að mikill ójöfnuður er ríkjandi á Norðurlöndum hvað varðar heilsufar. Þetta er á skjön við gildi okkar um að jafna eigi út félagslegan mismun í samfélaginu.
Camilla Stoltenberg, forstjóri norsku lýðheilsustofnunarinnar (Folkehelseinstituttet) leggur þess vegna áherslu á að ná þurfi til allra íbúa með því að beita almennum aðgerðum.
„Aðgerðum sem ná til allra fylgir ekki skömm, og við vitum að þær draga úr fjölda sjúkdómstilfella. Minniháttar heilsubót fyrir hvern einstakling skilar samfélaginu miklum ávinningi,“ segir Stoltenberg og bendir á vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar með næringarráðleggingar sem dæmi um verkefni sem hafi tekist vel.
Nánari upplýsingar um norrænar næringarráðleggingar:
Ég held að við verðum að leggja meiri áherslu á þekkingu og rannsóknir til að finna orsakir ójafnaðar í heilsu og velferð.Lýðheilsa fyrir alla
„Norræn velferð byggir á hugmyndinni um góða lýðheilsu fyrir alla. Þannig hefur okkur meðal annars tekist að berjast gegn smitsjúkdómum með bólusetningu og við erum komin vel á veg í baráttunni gegn lífsstílssjúkdómum með stefnumótun í áfengismálum og með reykingabanni. Á þessu sviði erum við fyrirmynd fyrir aðra heimshluta,“ segir Stoltenberg. Hún segir að jafnframt þurfi að leggja áherslu á lýðheilsumálin í framtíðinni ef þróunin á að halda áfram í rétta átt.
„Sem stendur eru Norðurlönd í fyrsta til þrítugasta sæti í heimi hvað varðar meðallífslíkur karla. Það er engin ástæða til að ætla annað en að við getum verið í fimm efstu sætunum í framtíðinni. Ég held að við verðum að leggja meiri áherslu á þekkingu og rannsóknir til að finna orsakir ójafnaðar í heilsu og velferð. Til dæmis vitum við lítið um samhengið milli heilsufars ungra barna og brottfalls úr skóla. Það er lykilatriði að þegar þekking hefur fengist á ákveðnu sviði verður að samþætta hana í þær þær aðgerðir sem gripið er til,“ segir Camilla Stoltenberg að lokum.
Nánari upplýsingar um áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um þróun velferðar á Norðurlöndum: