Samstarfsráðherrarnir ræða endurskoðun Helsingforssamningsins

18.02.26 | Fréttir
Nordiske samarbejdsministre ved møde i København, februar 2026
Ljósmyndari
norden.org

Norrænu þjóðfánarnir.

Norrænu samstarfsráðherrarnir frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum koma saman í Kaupmannahöfn í dag á fyrsta ráðherrafundi sínum undir formennsku Danmerkur og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni.

Á fundinum munu samstarfsráðherrarnir ræða endurskoðun samstarfssamningsins, Helsingforssamningsins, sem myndar rammann utan um norræna samstarfið undir Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði. 

Ein af megináherslum formennsku Danmerkur og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni er að endurskoða Helsingforssamninginn til að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fái tækifæri til að eiga aðild að samningnum á jafnréttisgrundvelli. Helsingforssamningurinn var samþykktur árið 1962 og síðast uppfærður árið 1996.

Morten Dahlin, samstarfsráðherra Norðurlanda í Danmörku, segir:

„Endurskoðaður Helsingforssamningur væri sögulegt skref sem tryggir hið norræna samstarf til framtíðar. Ég er því ánægður og stoltur yfir því að við munum undir formennsku Danmerkur og Færeyja ræða möguleika á endurskoðun samningsins, til að öll átta norrænu landi geti tekið þátt í samstarfinu á jöfnum grundvelli.“

Sirið Stenberg, samstarfsráðherra Norðurlanda í Færeyjum, segir:

„Færeyjar hafa tekið þátt í norræna samstarfinu í meira en 50 ár og hafa í nánast jafn langan tíma óskað eftir fullri aðild. Á þessum tímum höfum við þörf fyrir nánara norrænt samstarf og fleiri norræn gildi. Því er það gleðiefni að séum kominn á þann stað að hefja beinar viðræður um endurskoðun Helsingforssamningsins, sem mun tryggja jafna þátttöku allra átta norrænu landanna.“

Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Naalakkersuisoq í Grænlandi, segir:

„Grænland mun taka virkan þátt í ferlinu skipun nefndar sem ætlað er að endurnýja Helsingforssamninginn. Ferlið í kringum Helsingforssamninginn er forsenda þess að Grænland verði samþykkt sem samstarfsaðili sem stendur jafnfætis öðrum í norrænu samstarfi.“

Dagskráin inniheldur einnig viðræður um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2027 og síðan munu formaður Stjórnsýsluhindranaráðsins og forseti Norðurlandaráðs heimsækja ráðherrana. 

Tengiliður