Norræna ráðherranefndin hyggst hlúa að samfélögum á norðurslóðum
@Visit Greenland
Þrautseig og sterk samfélög
Nýja norræna áætlunin um málefni norðurslóða setur íbúana í fyrsta sæti, segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Markmið Norrænu ráðherranefndarinnar er að efla viðnámsþol og hlúa að traustum nærsamfélögum á norðurslóðum, segir Ellemann.
Í nærri 30 ár hefur Norræna ráðherranefndin unnið með virkum hætti að málefnum norðurslóða. Á þessum tíma hefur stofnunin stutt hin ýmsu verkefni, meðal annars starf vinnuhópa Norðurskautsráðs og stóra viðburði á borð við Norðurskautsráð ungmenna.

Þarfir fólksins í miðpunkti
„Það er ekki hægt að segja að það sem gerist á norðurslóðum fari ekki út fyrir norðurslóðir. Loftslagsbreytingar eru raunverulegar fyrir þær 4 milljónir manna sem búa á norðurskautsvæðinu. Það er lykilatriði að mikil áhersla verði lögð á viðnámsþol og aðlögun. Jafn miklu máli skiptir að hlustað verði á þarfir og óskir íbúanna. Þess vegna er nýtt markmið í norrænni áætlun um norðurslóðir að efla nærsamfélög,“ segir Ellemann.
Norræna áætlunin um málefni norðurslóða verður kynnt 27. janúar á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsö í Noregi.
Sjónarmið ungs fólks á norðurslóðum eru einnig í forgangi. Til dæmis hefur Norræna ráðherranefndin tekið þátt í fjármögnun Arctic Youth Forum 2025. Ráðstefnan fer fram í Tromsö dagana 24. til 26. janúar, fyrir ráðstefnuna Arctic Frontiers.
„Til þess að við getum skilið hvert heimurinn stefnir verðum við að ræða við unga fólkið. Þess vegna hlakka ég sérstaklega mikið til að hitta fulltrúa þess frá Arctic Youth Forum,“ segir Ellemann.
Mikil norræn viðvera á Arctic Frontiers 2025
Auk þess að kynna norrænu áætlunina um málefni norðurslóða tekur framkvæmdastjórinn Ellemann þátt í þéttri dagskrá bæði á aðalsviðinu og hliðarviðburðum.
Stofnanir á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, svo sem Norrænar orkurannsóknir, Norræna rannsóknaráðið, Norræna nýsköpunarmiðstöðin og Nordregio hafa mikla viðveru á Arctic Frontiers þessa árs.
Staðreyndir um norrænu áætlunina um málefni norðurslóða 2025-2027
Norræna áætlunin um málefni norðurslóða 2025-2027 hefur það markmið að styðja við félagslega, efnahagslega og umhverfislega traust samfélög á norðurslóðum. Áætluninni er ætlað að styðja staðbundnar aðgerðir og samstarf sem stuðlar að viðnámsþoli á norðurslóðum með því að hvetja til traustra samfélaga, sjálfbærs hagvaxtar og grænna umskipta. Norræna ráðherranefndin mun með þessari áætlun styðja við nýsköpunarverkefni á norðurslóðum sem samræmast framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2030.
10 milljónir danskra króna á ári í 3 ár
Auglýsing Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi (NAPA)
Fjármögnunarþáttur í umsjón skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar