Pushing for Progress er ekki bara slagorð, aðgerða er þörf
Norðurlönd með sameiginleg skilaboð
Finnland, sem fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2025, lagði áherslu á norræna forystu og það sem gefur tilefni til bjartsýni:
Rödd Norðurlanda er öflug. Hún á rætur sínar í arfleifð sem einkennist af jafnrétti kynjanna og framúrskarandi árangri. Með því að standa vörð um réttindi kvenna og stúlkna, með því að halda þessum málum áfram á lofti og með því að þrýsta á um framfarir getum við rutt brautina að betri heimi.
Fundur norrænu ráðherranna og framkvæmdastjóra UN Women, Simu Bahous, staðfesti eindreginn vilja Norðurlanda til að efla jafnrétti kynjanna á alþjóðavísu. Umræðurnar snerust um brýna þörf á að bregðast við auknu bakslagi og að styrkja alþjóðlegan ramma jafnréttismála, sérstaklega í aðdraganda 30 ára afmælis Peking-yfirlýsingarinnar árið 2025. Framkvæmdastjórinn hvatti norrænu löndin til að halda áfram forystuhlutverki sínu með því að efla kynjajafnrétti á vettvangi alþjóðasamstarfs, styðja UN Women og mynda ný bandalög til að tryggja áframhaldandi framfarir. Í kjölfarið lögðu norrænu ráðherrarnir og framkvæmdastjórinn, Karen Ellemann, áherslu á einbeittan vilja sinn til að halda áfram að knýja fram framfarir, þrátt fyrir núverandi áskoranir á heimsvísu.
Alþjóðlegt samstarf er lykilatriði í baráttunni gegn bakslaginu
Alþjóðleg mótstaða gegn jafnrétti kynjanna er vel skipulögð og því nauðsynlegt að styrkja bandalög þvert á pólitískar og svæðisbundnar línur. Um er að ræða aðkallandi kreppu sem ógnar þeim framförum sem þegar hafa unnist og hefur áhrif á líf kvenna og stúlkna um allan heim. Ráðist er gegn stefnumálum sem áður efldu jafnrétti, sem skapar miklar áskoranir fyrir baráttufólk, samtök og stefnumótendur sem reyna að verja þann árangur sem náðst hefur. Þetta bakslag hefur raunveruleg samfélagsleg áhrif, svo sem skertan aðgang að heilbrigðisþjónustu fyrir kyn- og frjósemisheilbrigði og veikari lagalegri vernd gegn mismunun og ofbeldi, og ekki síst aukið bakslag í stafrænu rými.
Því er mikilvægt að bregðast við með sameinuðu og stefnumiðuðu átaki, ekki aðeins til að verja fyrri árangur heldur einnig til að sækja fram með djörfum og framsæknum stefnumálum.
Í því umhverfi sem nú ríkir er samvinna mikilvægari en nokkru sinni. Sótt er að réttindum kvenna og stúlkna, sem og réttindum hinsegin fólks og annarra minnihlutahópa, um allan heim. Það skiptir sköpum að við látum í okkur heyra og stöndum saman, barátta okkar fyrir mannréttindum er mikilvægari nú en nokkru sinni.
Tengslin milli kynjajafnréttis og öflugra lýðræðisríkja
Jafnrétti kynjanna tengist lýðræðislegum gildum órjúfanlega, enda eru öflug lýðræðisríki byggð á frelsi, jafnrétti og valdeflingu allra einstaklinga. Á Norðurlöndum birtast þessi gildi í stefnumálum sem tryggja jöfn tækifæri kvenna og karla til að leggja sitt af mörkum í samfélaginu, en enn er verk að vinna. Lýðræðisríki styrkjast þegar allir geta tekið þátt í stjórnmálum, samfélagslífi og atvinnulífi án mismununar eða ofbeldis. Að standa vörð um þessi gildi, sérstaklega þegar sótt er að þeim, er lykilatriði í því að skapa réttlát samfélög sem allir geta tekið jafnan þátt í.
Það er kjarninn í Pushing for Progress.
Nánar