Mikilvægt skref í átt að uppfærðum Helsingforssamningi
Forseti Norðurlandaráðs Ville Väyrynen og framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs Kristina Háfoss mættu bæði á fundinn með norrænu samstarfsráðherrunum. Hér eru þau í samræðum við samstarfsráðherrana frá Noregi og Svíþjóð.
Ráðherrar frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum ræddu mögulega endurskoðun samningsins, sem frá árinu 1962 hefur myndað rammann utan um hið opinbera norræna samstarf og var síðast endurskoðaður árið 1996. Markmiðið er að uppfæra samninginn og færa hann til nútímans.
Við erum tilbúin til að vinna með virkum hætti að því til að saman getum við tryggt öflugt og nútímalegt norrænt samstarf.
Forseti Norðurlandaráðs, Ville Väyrynen, segir:
„Það gleður okkur að ríkisstjórnirnar hafi hlustað á einróma ákall Norðurlandaráðs um að endurskoða Helsingforssamninginn. Þetta er mikilvægt og tímabært skref. Samningurinn var síðast endurskoðaður fyrir 30 árum og í dag eru stafvæðing, loftslagsmál, stjórnsýsluhindranir og öryggis- og varnarmál mun stærri hluti hins norræna samtarfs.“
Ville Väyrynen leggur áherslu á að Norðurlönd hafi einstakt tækifæri til að endurnýja samstarf landanna átta.
„Norðurlandaráð hvatti ríkisstjórnirnar einróma til að stofna norræna nefnd sem hefur umboð til að leggja fram tillögur um nútímavæðingu – og við væntum þess að taka þátt í þeirri vinnu. Við erum tilbúin til að vinna með virkum hætti að því til að saman getum við tryggt öflugt og nútímalegt norrænt samstarf.“
Norðurlandaráð hlakkar til vinnunnar sem er framundan og náins samráðs við ríkisstjórnirnar um ferlið.
Á fundinum kynnti forsetinn einnig formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja fyrir árið 2026 og tillögur Norðurlandaráðs um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2027.
Annað tengt efni er að finna á eftirfarandi tenglum: