Yfirlýsing formennsku Norðurlandaráðs: Áfram eindreginn norrænn stuðningur við Grænland
Grænland er mikilvægur og órjúfanlegur hluti norrænu fjölskyldunnar, Norðurlandaráðs, Norðurlanda og hins norræna samstarfs.
Norðurlandaráð vinnur einart að því að stuðla að lýðræði og réttarreglu og að því að standa vörð um og styrkja reglubundna alþjóðaskipan.
Öll norrænu löndin eiga nú aðild að NATO og öll hafa þau sterk tengsl við Bandaríkin hvað varðar fjölskyldubönd, menningu, efnahag og öryggi. Við leggjum áherslu á að stuðla að nánara samstarfi við Bandaríkin, en það verður að byggjast á virðingu fyrir fullveldi ríkja, friðhelgi yfirráðasvæða og lýðræðislegum gildum.
Ákvarðanir um málefni er varða Grænland og konungsríkið Danmörku geta einungis verið teknar af Grænlandi og Danmörku.
Helsinki, 8. janúar 2026
Ville Väyrynen Kim Berg
Forseti Varaforseti
Norðurlandaráð er opinber vettvangur fyrir samstarf norrænu þjóðþinganna. Það var stofnað árið 1952 og í því sitja 87 fulltrúar átta norrænna þjóðþinga frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum. Finnland gegnir formennsku í Norðurlandaráði árið 2026.
Fyrri yfirlýsingar og stefna í alþjóðamálum
Yfirlýsing forsætisnefndar Norðurlandaráðs 31. mars 2025
Yfirlýsing forseta Norðurlandaráðs 15. janúar 2025
Stefna Norðurlandaráðs í alþjóðamálum