Bibi Fatima Musavi

Bibi Fatima Musavi
Ljósmyndari
Agnete Brun
Bibi Fatima Musavi: Jenter som meg, Aschehoug forlag, unglingabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Aðalpersóna þessarar unglingabókar er Asya sem býr í kjallaraíbúð ásamt foreldrum sínum. Hún er í framhaldsskóla og leitar sér að vinnu með skólanum. Með öðrum orðum er frásögnin ekki sérlega dramatísk á yfirborðinu. Samt sem áður býr í henni andóf. 

Asya upplifir að hún sé öðruvísi. Kennarinn ber nafn hennar fram eins og nafn heimsálfu. Íhaldssamar frænkur og frændur hneykslast á tali hennar um jafnrétti. Strákar sem hún verður skotin í eru þegar í sambandi með ljóshærðum norskum stelpum. Og hún fær ekki vinnu á kaffihúsi af því að hún ber hijab-slæðu. Yfirmaðurinn á Burger King spyr hvort hún geti ekki notað derhúfu í staðinn. Asya upplifir það stöðugt að vera smættuð niður í ytri einkenni sín og af því hlýst reiði sem fær útrás í afstöðu hennar til heimsins í kringum hana. Eselet, mágur Asyu, verður einkum fyrir barðinu á gagnrýni hennar. Hún hæðist að foreldrum sínum, sem treysta ekki uppþvottavélinni og nota hana til að geyma tómar flöskur í. Hún sér þverstæðuna í því að kaupa halalslátrað kjöt á stað sem heitir Svínasund. Sjálfshæðni hennar kemur sérstaklega sterkt fram þegar hún skoðar sjálfa sig utan frá, svartklædda frá toppi til táar eins og háttsettur meðlimur í múlla-mafíunni.  

Asya er norsk í augum fjölskyldu sinnar en of mikill útlendingur fyrir hið hvíta samfélag utan heimilisins. Þessi tvískipting er einn af styrkleikum bókarinnar. Frásögnin er knúin áfram af kröftugri blöndu af ofsareiði, skömm og beittum húmor. Tungutak bókarinnar hæfir markhópnum vel. Sögumannsröddin er kraftmikil og grípandi og gerir að verkum að erfitt er að leggja bókina frá sér.  

Titillinn Jenter som meg („Stelpur eins og ég“) er beinskeyttur og inngildandi. Musavi gefur hér rödd hópi ungra stúlkna sem lifa og hrærast í veruleika sem margir vita ekkert um. Getur verið að undir hijab-slæðunni sé stúlka sem lætur sig dreyma um nákvæmlega það sama og aðrir unglingar? 

Bibi Fatima Musavi (f. 1998) er fædd og uppalin í Ósló. Hún lauk grunnnámi í fjölmiðlafræði og stundar nú meistaranám í fjölmiðlun og samskiptum. Jenter som meg er fyrsta bók hennar.